Þetta er flott, Wayne.
Smá tilraun við sléttubönd
Hestur góður, aldrei er
illur mjög við drengi
Bestur talinn, fráleitt fer
fullhratt niðr'á engi
Góður!
Stundum brýst fram í manni dónaPó
Eftir að sautján ég eignaðist börn
ákveðið hefi ég þetta:
Framvegis ætla ég aðeins í görn
æxlunarvessa að skvetta.
Smá tilraun við sléttubönd
Hestur góður, aldrei er
illur mjög við drengi
Bestur talinn, fráleitt fer
fullhratt niðr'á engi
Þessi tilraun er sko ekki smá. Glæsilega gert.
Pulsur voru í pottinn settar
pakki af mús svo hrærður vel.
Svo ég dró fram sósur nettar,
svaka góðan mat það tel.
Úr fjötrunum langar að losna.
Sjá leiftrandi foringja kosna.
En bleikt er ei rautt
og blað mitt er autt
því blekið er alltaf að frosna.
Ræður ekki langar les,
list er mas að stöðva.
-neff það kunni best hann Brés-,
burt af sviði'að hörfa.
Andremmunni aumingjarnir undan stykkju
og á sína leið þeir lykkju
legðu undan tindabikkju.
Gleðilegs nú óska árs
sem að er lagður grunnur.
Þótt afleiðingar eðaltárs
ég upplifi. Skelþunnur.
Iðnaðarsílíkon. Iðnaðarsalt.
Iðnaðarstjórnmálaþavaður.
Iðnaðarfjölmiðlar. Iðnaðar allt!
Iðnskólalærður hver maður.
Her er ro og her er fred. Her er godt å sett seg ned. Tenke' om sine tunge tanker, nettopp til å noe banker. Det er mål og gode sed å stå da opp og skylle ned.
Mæðir núna mannkynið af miklum þunga
hve heimsins framtíð, æskan unga,
óhrædd rakar klof og punga.
Kengboginn með kvalið bak ég kveina: Æi.
Furðulítið flottur gæi.
Færi best á því að dæi.
Safnanóttin fjörug og fögur
flennimikil skemmtun er
vekur bæði von og ambögur
vísnaskot í brjósti mér.
Gott finns mér er góan blíða
gefur birtu, myrkrið þverr.
Nú er dýrðleg þorraþíða,
þess má njóta meðan er.
Það er margt sem Fljótsdælingar forma,
fynna má þar ímsa skrítna kalla.
Sem gjarnan smíða úr girðingunum orma,
og gleðja með því heimsbyggðina alla.
Betelsnorra búast menn til bestu varna.
Fer þó gaman fyrst að kárna
er fær hann stuðninginn frá Árna.
Ofstæki dáðir dommar.
Djöfull í höfðinu trommar.
Eru á heilanum hommar.
Í huganum vondir kommar.