Íslands hrausta fagra
og fiðruðu Íslensku hænur.
Indlands hvíta Agra
og andans lækjarsprænur.
Grunar að bréfritara hafi láðst með einu orði að ljá fyrripartinum stuðla og merkingu:
Íslands hrausta fagra (fé?)
og fiðruðu íslensku hænur.
Útrásarvíkingaskipin ske-
lfilegar skítakænur.
Haldið þið að himni á
hækki sólin aftur?
Haldið þið að himni á
hækki sólin aftur?
Okkur lýsi aftur þá
alheimsdýrðarkraftur.
Dapurt sinni, drunginn einn
desember á enda
Dapurt sinni, drunginn einn
desember á enda.
Í janúar sást jólasveinn
að júnílokum benda.
Sólin vill fá sumarfrí
og suðrí lönd þá fara.
Sólin vill fá sumarfrí
og suðrí lönd að fara.
Gleðja mun það Stebba strí
og strákpjakkinn hann Ara
----------------------------------
Nú er úti válint veður
vatnagangur mikil svell.
Nú er úti válint veður
vatnagangur mikil svell.
Í slíkri tíð þá slæmt margt skeður
sleppa fætur, rass fær skell.
Hlutabréf í Högum býður
Höllin væn við Laugaveg.
Hlutabréf í Högum býður
Höllin væn við Laugaveg.
Glámur þar nú röftum ríður,
rosalega er þjóðin treg.
Málin skyldi setja í salt,
sem að rétt er vottað.
Málin skyldi setja í salt,
sem að rétt er vottað.
Engin skyldi eiga allt
Án þess að hafa tottað.
Óskaplega ílla mér
Er við þessa pretti
Málin skyldi setja í salt,
sem að rétt er vottað.
Engin skyldi eiga malt
Án þess að hafa tottað.
Óskaplega ílla mér
Er við þessa pretti:
Þegar ég á fætur fer
fell ég oft um ketti.
Gjöldin sem þú greiða átt
gjaldfalla á morgun.
Gjöldin sem þú greiða átt
gjaldfalla á morgun.
Dráttarvextir dafna flátt
dragist þessi borgun.
Ullarpeysur, ullarbrækur,
alltaf reynast best.
Ullarpeysur, ullarbrækur,
alltaf reynast bezt.
Í ullu klæðist Ketill skrækur
Katli' að henni gezt.
Með iðnarsalti frá Ölgerðinni
ég ætla' að krydda matinn þinn.
Ullarpeysur, ullarbrækur,
alltaf reynast best.
Allan vetur ertu sprækur,
aldrey færðu pest.
Með iðnarsalti frá Ölgerðinni
ég ætla' að krydda matinn þinn.
Við díoxín lömbin ég dável kynni
ef diskinn þau fylltu minn.
Vettlingana víst þú skalt
vera með á höndum.
Vetlingana víst þú skalt
vera með á höndum.
Ef þér verður kanski kalt
í klaka og frosta böndum.
------------------------------------
Drekka skaltu mikið malt
melting' lagar,bætir.
Drekka skaltu mikið malt
melting' lagar,bætir.
Víst ávalt þeim vana halt.
það vissulega kætir.
Upp úr sjó þú elda skalt
svo ekki þurfi að salta.
Upp úr sjó þú elda skalt
svo ekki þurfi að salta.
Og éta síðan kjötið kalt,
kartöflur og malta.
-----------------------------------
Svo að fá sér grjóna graut.
gott er líka kaffi.
Svo að fá sér grjóna graut.
gott er líka kaffi.
Díoxín- ég dái -naut
sem duga vel í straffi.
Öllu snúið er á haus
af elítunnar þjónum.
Öllu snúið er á haus
af elítunnar þjónum.
Blessuð þjóðin buxnalaus
bitling dregur af sjónum.
Flatskjá þú fláráður keyptir
fór því á þennan veg
Flatskjá þú fláráður keyptir
fór því á þennan veg
í skuldir þú stórar þér steyptir
sem stjórnin svo hækkaði, treg.
Þungvopnaðir þramma menn
þvers og kruss um landið.
Þungvopnaðir þramma menn
þvers og kruss um landið.
Sýndist mér – og sýnist enn
sitthvað málum blandið.
Bóndanagsins bíðum vér,
brátt fást súrir pungar