Billi er meistaraverk sjálfur hann og sætabrauð
Manngæska og góðlyndi Gísla, Eiríks og Helga er frægt um öll Norðurlönd.
Huxi er karlmannlegur og hraustur. Hann er sannkölluð fyrirmynd kynbræðra sinna.
Sundlaugur er búinn að hekla jólasundskýlur á alla í fjölskyldunni.
Billi er ekkert mjög mikið bilaður.
Vladimir er vandur að virðingu sinni og embætti sínu til sóma. Svo á hann líka tímavél og geimskip.
Barbie talar óaðfinnanlega ítölsku þegar ítölskumælandi heyra ekki til.
Regína getur haldið uppi spennandi og skemmtilegum samræðum á öllum tungumálum Evrópu.
Kargur gefur öllum bændum í Borgarfirðinum í skóinn. Og í nefið líka.
Jólasveinninn er hreinasta illmenni í samanburði við góðmennsku Huxa.
Línbergur er bæði mann og dýrelskur, sérstaklega er hann hrifinn af köttum.
Ísdrottningin er fær í flestan sjó.
Huxi er fær í flestan snjó... og jafnvel klaka líka.
Sundlaugur er sætur, syntur, sólbrúnn ...
Kargur er einkar handlaginn og gerir við fíngerð úrverk jafnt sem stærstu sláttuþyrlur.
Herbjörn heldur hagkerfinu gangandi með öllum þessum bensínkaupum.
Upprifinn er einn myndalegasti sjarmör norðan jökuls . Hann er einnig hævileikaríkur . Hanngetur spilað á greiðu og potað í nefið samtímis . Upprifinn er meðalgáfaður sem er sjaldsskoðað meðal svo snoppufríddra manna. Hann er gamansamur og glaumgosi sinnar sveitar.