— GESTAPÓ —
Hagyrðingar allra landa sameinist
» Gestapó   » Kveðist á
        1, 2, 3 ... 359, 360, 361 ... 459, 460, 461  
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Barbie 11/12/11 23:28

Fátt eitt gott að frétta hér,
fölleit andlit skjánum á
krepputíð og kastast fer
kekkj´ í okkar milli þá.

Komið er nú kreppuraus,
kannski það sé orðið gott

Dr. Barbie von Mattel - YFIRLÆKNIR. . • Sendiherra Baggalúts í N-Ameríku, drottnari innfæddra þar, Forseti USA og sérleg hirðmey Júlíu miklu. Dýrkuð og dáð um aldur og eilífð.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
lappi 12/12/11 14:14



Komið er nú kreppuraus
kannski það sé orðið gott.
Fyrir gamlan hænu haus
heimabúið árans raus.
--------------------------------------
Nú er glatt í hverjum hól
hátíð nálgast börnin góð.

lappi
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Heimskautafroskur 12/12/11 15:36

Nú er glatt í hverjum hól
hátíð nálgast börnin góð.
Jólalagagarnagaul
gerir okkur hjónin óð.

Ég hlakka til hátíðarjóla,
en hækkandi sólar þó fremur.

vér kvökum og þökkum
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
mubli 12/12/11 22:06

Ég hlakka til hátíðarjóla,
en hækkandi sólar þó fremur.
Þá nema má naumari kjóla
sem niður á leggi ná skemur.
________________________

Liggur yfir Ísalandi
öllu snjóalag.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
lappi 13/12/11 22:45

Liggur yfir Ísalandi
öllu snjóalag.
Allt í bála brandi
blindhríð sérhvern dag.
----------------------------------
Ég heiri fagran fuglasöng
fyrir utan gluggan minn.

lappi
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
mubli 14/12/11 19:45

Ég heyri fagran fuglasöng
fyrir utan gluggann minn.
Situr starri' á timburstöng
starir hann um gluggann inn.
______________________

Obbulítið apaskinn
æðir um í bræði.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
lappi 16/12/11 17:51



Obbolítið apaskinn
æðir um í bræði.
Er á leið í Köldu kinn
kófsveittur með æði.
----------------------------------- +
Jóla kattar kvikindið
kominn er í bæjinn.

lappi
GESTUR
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Bullustrokkur 17/12/11 12:27

Jólakattar kvikindið
kominn er í bæinn.
Yfir klökótt kviksyndið
- Við krakka er hann laginn.

Ég ritaði margt um Gilja-Gaur
og gagnrýndi siði' og venjur hans.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
lappi 17/12/11 13:35

Ég ritaði margt um Gilja'Gaur
og gagnrýndi siðióg venjur hanns.
En Gáttaþefur og Stekkjastaur,
stelast enn í kvennafans.
---------------------------------------------
Nú fer ég og baka brauð
bráðum koma jólin.

lappi
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
mubli 17/12/11 16:26

Nú fer ég og baka brauð
bráðum koma jólin.
Vænan hangin verka sauð
víkkar sultarólin.

______________________

Aðventan er yndisleg,
iðka margan löstinn.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
lappi 18/12/11 17:31


Aðventan er yndisleg,
iðka margan löstinn.
Út á túni drösul dreg,
og dansa ræl við pöstenn.

---------------------------------------

Appelsín og mikið malt
mun ég drekka um jólin.

lappi
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Billi bilaði 18/12/11 19:13

Appelsín og mikið malt
mun ég drekka um jólin.
Víst ávalt þeim vana halt
þó vond sé sultarólin.

Nýmetið má nálgast ef
nærir best þig ríma.

Sérlegt hirðkrútt og gæludýr hinnar keisaralegu hátignar • Sitjandi á kornflögu, bíð ég þess að vagninn komi
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
lappi 18/12/11 23:55


Nýmetið má nálgast ef
nærir best þig ríma
Hljómar í eyrum stiklu stef,
starf er visku glíma.
-----------------------------------------
Jólin nálgast jólin koma brátt,
jólasveinar og gjafirnar.

lappi
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Billi bilaði 19/12/11 08:22

Jólin nálgast jólin koma brátt,
jólasveinar og gjafirnar.
Börnin tréin kringum hoppa kátt
en kætast ey við tafirnar.

Einn þú pakkann opna mátt
ef þig biðin drepur.

Sérlegt hirðkrútt og gæludýr hinnar keisaralegu hátignar • Sitjandi á kornflögu, bíð ég þess að vagninn komi
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Heimskautafroskur 19/12/11 10:49

Einn þú pakkann opna mátt
ef þig biðin drepur.
En dauðann, sem þín bíður brátt,
úr blárri skel þú lepur.

Í skammdegismyrkri ég skemmti mér við
að skreyta með afhöggnum greinum.

vér kvökum og þökkum
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Billi bilaði 19/12/11 11:26

Í skammdegismyrkri ég skemmti mér við
að skreyta með afhöggnum greinum.
Skötnum ég býð svo í skötu og svið
sem skóflum við niður með veinum.

Kertavax er komið á
hverja grein á trénu.

Sérlegt hirðkrútt og gæludýr hinnar keisaralegu hátignar • Sitjandi á kornflögu, bíð ég þess að vagninn komi
GESTUR
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Bullustrokkur 19/12/11 22:59

Kertavax er komið á
hverja grein á trénu.
Nú í bakið fer að fá.
Finn til líka í hnénu.

Getur þú skaffað afgangs orku
til álvers í Helguvík?

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Billi bilaði 19/12/11 23:05

Getur þú skaffað afgangs orku
til álvers í Helguvík?
Þér get ég lánað kút og kork - u -
kannski þér dugi slík?

Allir fara upp á hjól
og orku þannig skaffa.

Sérlegt hirðkrútt og gæludýr hinnar keisaralegu hátignar • Sitjandi á kornflögu, bíð ég þess að vagninn komi
        1, 2, 3 ... 359, 360, 361 ... 459, 460, 461  
» Gestapó   » Kveðist á   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: