Garbo er að endurvinna súkkulaði.
Grágrímur er að lagast.
Regína er að ég held að spássera um í konungshöllinni ansi einmanna og að leita eftir manninum sínum honum Hlégesti sem gagnar henni ekki neitt
Gísli Eiríkur og Helgi raular Lúsíusálm og maular saffranbrauð.
Ísdrottningin er að setja símanúmerið 900-9906 í hraðval á símanum sínum.
Billi er að hengja jólakúlur í örina sína.
A.P. er líklega að fróa forvitni sinni varðandi dýptir og gljúfur heimspekinnar sem liggur á bak við nautnir lífsgleði ... ég gefst upp... hún er líklega bara að éta mandarínu.
Jarmi er að hita hrukkustraujárnið.
Regína er að fara að þvo af sér maskann sem hún notar á hverjum degi til að halda húðinni unglegri.
Drottningin bræðir ísinn
Yggarz er að kemba yfirvaraskeggið. Snyrtimenni.
Garbo var að klára að drepa kvöldmatinn.
Jeg held að huxi sé að huxa um gömlu góðu árin þegar Hljómar urðu Trúboð og hægt var að fá sparibauka með Jókim aðalönd sem sat á kistu merktri útvegsbankanum og spara fyrir framtíðinni og dansiballi í tónabæ.
GEH er að fletta í gömlum Æskublöðum, sem hann fann uppi á háalofti.
Línbergur er að gera teygjuæfingar, núna nær hann að klóra sér á bakvið bæði eyrun með vinstri fæti.