Fær sér kók
Alveg sammála þér
Djeskolli var þetta fróðlegur þráður. Einum fróðleik má þó bæta við sem við kokkarnir vitum en það er að ef þú ætlar að marinera kjöt í kóki þá verður kjötið horfið á einum sólarhring. Sem sagt kjöt leysist upp í kók.

Ég hef reyndar marinerað kjöt í kóki, og það hvarf ekki, reyndar var kókið frekar goslítið til að byrja með (ég ætlaði fjandakornið ekki að sóa fullkomlega góðu kóki í vísindalegar tilraunir) en ég hugsa að "kjötið hverfur" sé goðsögn
Djeskolli var þetta fróðlegur þráður. Einum fróðleik má þó bæta við sem við kokkarnir vitum en það er að ef þú ætlar að marinera kjöt í kóki þá verður kjötið horfið á einum sólarhring. Sem sagt kjöt leysist upp í kók.
Það er víst mjög áhrifaríkur megrunarkúr. Borða aðeins ket sem er búið að liggja í kóki í 2 sólarhringa.
Mythbusters tóku þetta með kókið sérstaklega fyrir......
Coca Cola er táknræn sykurleðja. Táknræn fyrir hinn nýja imperíalisma Ameríkananna. Ég hef heyrt sagt, að markið stjórnenda fyrirtækisins sé að "svala þorsta heimsins með kóki". Nú er mér spurn: Af hverju ekki að einbeita sér fyrst og fremst að því verkefni, að svala þorsta heimsins með hreinu drykkjarvatni? Það er algjörlega skammarlegt, á þessum svokölluðu upplýstu tímum, að sumt fólk í hér í heimi skuli ekki hafa aðgang að svo sjálfsögðum hlut. Og hvað gera amerísku stórfyrirtækin við því? Nákvæmlega ekki neitt, því ekki græða þau á því.
Þetta er skammarlegur vitnisburður um hversu misheppnað peningagróðakerfið er.
Jú mikið rétt. Það er ekki eins og Rússar hafi soltið á dögum kommúnismans, eða hvað? Starir þegjandi út í loftið
Fer í fýlu
Kók er unaðsdrykkur og afar mikilvægur með góðum mat.
Það hreinsar pallettuna og örvar bragðkyrtlana.
Ennfremur hjálpar það til við meltinguna að máltíð lokinni.
Þetta á sérstaklega við ef um er að ræða fituríkan mat eins og osta, lambakjöt eða mör.