Fer allt ljós jafnhratt? Ef ekki, hvaða ljós hefur mesta hraðann og hvaða ljós hefur minnsta hraðann?
Allar rafsegulbylgjur fara jafnhratt í sama umhverfi. Hraðast fara þær í lofttœmi.
Er allt ljós rafsegulsbylgjur?
Svo er.
Samt er ljós einnig eindir. Ef mælingar CERN manna eru réttar þá þarf að endureikna alheiminn. Þá gæti verið að hulduefnið hyrfi og eitthvað annað kæmi í staðin... Spennandi.
En, líkt og vér bentum á áður, gerir þessi eðlisfræðingur ráð fyrir að mæliskekkja sé í vegalengd milli málpunkta.
Varúð! Hlekkjað gagnabœli er á engilsaxnesku skráð.
Þessi þráðarvísun leiddi mig á erlenda snakk og slúðursíðu. Því miður tek ég ekki mark á henni, það er bara Gestapó eða Sience...
Þér ættuð að víkka sjóndeildarhring yðar, Huxi. Takið yður í hönd eintak af Nature.
En óneytanlega þætti skemmtilegt, ef víddirnar væru teygjanlegar, og sjáum vér því í raun eigi nokkuð til fyrirstöðu.
Það er mjög mikilvægt að víddin sé breytileg. Síddin má hins vegar vera föst stærð. Setur upp sinn algáfulegasta svip