Og af hverju er það slæmt ? Þurftiru að hlaupa á eftir strætó ? Grípur um kvið sér, leggst í fósturstellingu á jörðina og veltist um, emjandi af hlátri
Vér áttum frí í dag.
Og af hverju er það slæmt ? Þurftiru að hlaupa á eftir strætó ? Grípur um kvið sér, leggst í fósturstellingu á jörðina og veltist um, emjandi af hlátri
Glottir eins og fífl
Vér áttum frí í dag.
En mættir samt?
Ég var of lengi í vinnunni.
Nei, en það hefðum vér gjört, hefðum vér bifreið. Án minnsta gríns er ekkert við að vera í Suðursveit.
Nei, en það hefðum vér gjört, hefðum vér bifreið. Án minnsta gríns er ekkert við að vera í Suðursveit.
Er ekki alltaf rífandi stemming á Þórbergsetrinu?
Nei, þeir sem búa á Breiðabólsstað koma hingað í teitin.
Ég þurfti að kaupa bensín
Vér drukkum brennivín.
Ég hitti múrara í dag. Það er alltaf frekar óskemmtileg lífsreynsla.
Ég gleymdi að taka lyfin mín........
Systir mín hringdi í mig til að segja mér að hún væri að fara að kaupa sér sjónvarp. Sagði mér í mjög ítarlegu máli hvað væri að hennar sjónvarpi. Spurði mig ráða um hvernig sjónvarp hún ætti að kaupa, hvernig sjónvarp ég ætti, hvað það hefði kostað og hvort það væri gott. Ræddi svo um verð flestra sjónvarpstækja til sölu í Elko. Svo spurði hún aftur hvaða tegund af sjónvarpi ég ætti, og hvort það væri gott. Spurði svo meira um verðið á því og hvort ég héldi að Thomson sjónvörp væru góð - já og hvað myndi kosta að senda það út á land. Spurði svo aftur hvernig sjónvarp ég ætti og hvort hefði verið mælt frekar með því eða einhverju öðru sjónvarpi. Spurði svo hvort það væru góð myndgæði. Tilkynnti mér svo aftur um verð flestra sjónvarpstækja til sölu í Elko og hvað hún þyrfti að borga á mánuði í léttgreiðslur ef hún keypti þessi sjónvörp. Sagði mér svo aftur hvað væri að sjónvarpinu sem hún ætti og spurði aftur um gæði Thomson sjónvarpa. Taldi upp flestar tegundir sjónvarpa til sölu í Elko (sleppti verðinu í þetta sinn). Barmaði sér svo töluvert meira yfir bilaða sjónvarpinu og spurði hvað kostaði að senda sjónvarp út á land. Ræddi mikið um Grundig sjónvörp og velti aftur upp möguleikanum á að kaupa Thomson sjónvarp. Ræddi mikið um að ekki svaraði kostaði að gera við bilaða sjónvarpið. Ræddi um að athuga hvað sjónvörp kostuðu í verslunum hér í bæ. Vék máli sínu örlítið að Thomson sjónvarpinu, og mínu sjónvarpi einnig, hvort mælt hefði verið með því. Minntist aftur á athugun í verslunum hér í bæ.
Hlé.
Hringir aftur, rekur mest allt af því sem að ofan er talið og tilkynnir mér svo að hún hafi ákveðið hvernig sjónvarp hún ætli að kaupa - það er alveg eins og mitt. Ræddi svo verðið á því og mánaðarlegar greiðslur. Vék máli sínu aðeins að Thomson sjónvarpinu og nefndi Grundig, lét þó vera að ræða verð og gæði. Bara svona nefna möguleikann á því að kaupa svoleiðis sjónvörp.
Andlega uppgefin laug ég því að ég þyrfti að rjúka...
Þess má geta að ég hef hvorki áhuga né hundsvit á sjónvörpum - en slíkar fortölur höfðu ekkert upp á sig í þessum símtölum. Þrátt fyrir það var ég talin afbragðs ráðgjafi hvað varðar kaup á sjónvarpi.
Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Ég var að ganga heim úr vinnu og gekk þá frammhjá hnefastórum skítahrauk. Ekki veit ég hvaða skepna lét þetta frá sér. Ógeð að láta svona liggja.
Ég vaknaði klukkan hálf 3 um nótt og gat ekki sofið meira. Óþolandi
Ég sá baunska fautann Christian Poulsen byrja inná fyrir Liverpool.
Ég sá að múrarahelvítið hafði stolið sparisöginni minni til að saga einangrunarplast. Hann skal fá að kaupa mér nýja sög eða ég saga lappirnar af honum með þeirri sem hann eyðilagði.