Við erum þó ekki að tala um fasistabeljuna Þorgerði K.?
Nei, aldrey hefur mér dottið í hug samanburður við kýr þegar ég hef séð þessa.
Ríkið vel hún ræktaði. (Katrín mikla)
Raun er henni geðslagið.
Á baun hún ekki blundaði. (Kata af Miðtúnum)
Bauginn slétta sáum við. (Kötukvæðiskata)
Og koma svo með þá síðustu. Þið hafið öll horft á hana.

Íslensk raunvera?
Ekki íslensk, en raunvera já.
Oss hefir nokkuð grunað, að þar eigið þér við Katrínu tátu, en getum þó eigi vissir verið.
Ekki þekki ég Katrínu þessa tátu. Hvurnig myndi það útleggjast á frummálinu?
Katherine Tate, gerum vér ráð fyrir hún heiti.
Ég hef ekkert heyrt um geðslag hennar undanfarið.
Er þessi útlenska raunvera á lífi?
er það máske Z - Jones (Douglas) ?
Auðvitað.Og þá er það allt komið. Ljómar upp
Drottning er dáum vér.
Dagur ei hennar er.
Móðirin mikið þver.
Malbikið spólar hér.
Drottning er dáum vér. - Regína.
Dagur ei hennar er. - Næturdrottningin.
Móðirin mikið þver. - hlewagastiR.
Malbikið spólar hér. - Herbjörn Hafralóns.
Drottning er dáum vér. - Regína.
Dagur ei hennar er. - Næturdrottningin.
Móðirin mikið þver. - hlewagastiR.
Malbikið spólar hér. - Herbjörn Hafralóns.
Allt gott - en ekkert rétt
Drottning er dáum vér. - Silvía, drottning í Svíþjóð, eiginkona Karls Gústafs, Svíakonungs
Dagur ei hennar er. - Silvía Nótt, fyrrum fulltrúi Íslands í Júróvísjónsöngvakeppninni
Móðirin mikið þver. - Silvia's Mother, sem Dr. Hook söng um hér forðum
Malbikið spólar hér. - Einhver Silvía sem stundar kappakstur?
Góður, Líni.

eða e.t.v. Nissan Silvia - kappakstursbíll...