Já (en ekki þetta innlegg frá Huxa því ég er nú fæddur á Hornafirði og á þar eitthvað af fólki. En það má kannski nefna það að ég tel Hornafjörð einn fallegasta stað á landinu og geri ég mér ferð þangað þegar ég hef tækifæri á því. Amma mín og afi búa þar og eru orðin 92 og 94 ára og vel þekkt af íbúum Hafnar á aldursbilinu 30 - 100 ára. Afi er kall byrjaði að byggja einbýlishús 70 ára og klifraði upp á þak til að negla þaksaum. Hann nánast hljóp upp á fjöll þá og hafði mest úthald allra. Í dag er hann 94 ára og heldur betur farið að draga af kalli en kollurinn er í fínu lagi. Ég náði upp úr honum klukkutíma sögustund um daginn bara með því að nefna nöfn þriggja nafntogaðra manna af Mýrunum, úr Suðursveit og innan úr Nesjum. Svo býr móðursystir mín í næsta húsi við þau og það er alltaf gaman að hitta þau hjónin. Í það heila tekið þá er Hornafjörður besti staður í heimi)
Hefur þú eitthvað að gera?
Já - hlæja að því að Ívar hafi þurft að taka það sérstaklega fram að afi hans væri kall.
Hefur þú migið í saltan sjó?
Já. En ég hef ekki migið í ósaltan sjó, enda aldrei komið að Langasjó, sem er eini ósalti sjórinn sem ég veit um.
Hefur þú komið að Langasjó?
Já.
Hefur þú tekið þátt í norrænu sundkeppninni? (Þegar allir áttu að synda 200 metrana)
Nei.
Hefur þú tekið þátt í norræna skólahlaupinu?
Já, nokkrum sinnum.
Hefur þú farið í dansskóla?
Jamm. Fasistarnir í grunnskólanum skikkuðu alla á dansnámskeið. Ég hef óbeit á dansi.
Hefir þú dregið lamb úr rollu?
Já.
Hefur þú þurft að kafa djúpt?
Nei.
Hefur þú verið í barnastúku?
Neinei
Hefur þú fengið heimsókn frá býflugu sem var á stærð við ÞRÖST !?
Nei. Ég er nokkuð viss um að það eru ekki til svo smáir þrestir.
Hefur þú látið mann snýta rauðu?
Nei.
Hefur þú orðið drukkin/n og verið kominn á fremsta hlunn með að hringja í gamla/n Kærustu/asta og segja henni/honum hvað þér finnst í raun og veru um hana/hann?
Nei
Hefur þú laumast inní bíósal í hléi án þess að borga?
Nei, það hef ég ekki.
Hefur þú svindlað á prófi?
Nei... en planaði það einu sinni en þegar til kom þorði ég því ekki.
Hefur þú tapað vitsmunabardaga við plastpoka?
Já.
Hefur þú haft einkaritara?