hlewagastiR, konungur og rafmælisbarn. Snillingur ertu! Þetta leikur enginn eftir, að skutlast hingað yfirum á sjálfan rafmælisdaginn! Velkominn í hóp þeirra sem eru með einkennismynd látinnar persónu.
Rafmælisgjöfinn frá drottningu þinni er að sjálfsögðu konungleg útför með lúðraþyt, yfirsöng að eigin vali, prósessíu og hattasýningu í beinni útsendingu og kistan (með þér í auðvitað) á fallega útskornum vagni dregnum af fjórum fjaðurskreyttum fjörhestum, sem hlaupa hver í sína áttina og vita ekki hvert á að fara.
Hm, ég ætla að skipta hestunum út fyrir fiska.
Sic gloria transit mundi...
xT fyrir hlewagastiR.
Jæja, nú þurfið þið bara að nefna tvö kraftaverk tileinkuð honum til að við getum formlega tekið hann í dýrðlingatölu.
Hvað um að yrkja ódauðlegt kvæði, smávegis hannesað, á dánardegi sínum?
Sic gloria transit mundi...
xT fyrir hlewagastiR.
Jæja, nú þurfið þið bara að nefna tvö kraftaverk tileinkuð honum til að við getum formlega tekið hann í dýrðlingatölu.
Hvað um að yrkja ódauðlegt kvæði, smávegis hannesað, á dánardegi sínum?
Great minds think alike. Fyrst gerði ég einmitt þetta, svo last ég póstinn þinn ...
Frábært.
Og hitt kraftaverkið er að hann tjáir sig hér handan frá.
Það er þá hér með staðfest að hlewagastiR er fyrsti Dýrðlingur Baggalútíu.
Þeir sem vilja heita á hann skulu leggja viðeigandi summur inn á reikning eftirlifandi spúsu hans, Regínu.
ES: Hvað verður nú um Villimey og börnin?
Hverjum er ekki sama. Hér fyrir handan bíða mín óspjallaðar meyjar á þörfinni í þúsundatali.
Veltir fyrir sér ástæðu allra þessara óreyndu kvenna í múslímska himnaríkinu
Til hamingju með rafmælið, hlewagastiR! xT
Veltir fyrir sér ástæðu allra þessara óreyndu kvenna í múslímska himnaríkinu
Einhvern tímann las ég að orðin fyrir óspjallaðar meyjar og rúsínur í Kóraninum væru mjög lík og að huxanlega sé um þýðingarmisskilning að ræða... þvílík vonbrigði ef satt er
Það tilkynnist hjer með opinberlega að hlewagastiR fær hjer með formlegar rafmæliskveðjur frá oss hvað sem atburðum dagsins líður. Kekkonen og Næturdrottningin fá einnig formlegar rafmæliskveðjur.
Til hamingju með rafmælið, hlewagastiR!
Megir þú lengi lifa! Húrra! Húrra! Húrra!
Til hamingju með rafmælið, Næturdrottning! Láttu Nermal nú stjana við þig í tilefni dagsins.
Og til hamngju með rafmælið, U K Kekkonen!
Hlebbi, það er engin ritsavél jafn skelegg og þú, megir þú lengi rista, húrra, húrra, húrra!
Og skál.
Til lukku með rafmælið Norna.
Síðbúnar kveðjur til hlebba.
Allir fá fullt af rafmæliskveðjum. Villimey, Væni-Grétar, hlewagastiR, Nornin o.fl. o.fl.
[Mokar fullt af kóbalthúðuðm rafmæliskveðjum í allar áttir]
Madaman færir Norninni ákafar rafmælis og saknaðar kveðjur.
Leggur í bouillabaisse í von um að ilmurinn lokki Nornina til Baggalútíu á ný.
Halló Anna Panna. Hérna færð þú rafmæliskveðju frá mér. Til hamingju. Færir Önnu Pönnu gífurlegt magn af rafmælisgjöfum sem Færeyingurinn hefur verið að dúlla við að útbúa í hjáverkum Þar á meðal allt sem hana vantar
Til hamingju Anna Panna. Færir Önnu allt sem hana vantar ekki en langar í xT
Til hamingju með daginn Anna Panna.
Anna Panna fær bestu hamingjuóskir með rafmælið. xT