Lætur sér nægja Mola flugustrák
Nær sér í eitthvað annað að lesa eftir Ragnar Lár
Nei, bíðum við... skrifaði Ragnar Lár eitthvað annað en Mola flugustrák?
Kannski Köngul Könguló???
Eruð þið virkilega þau börn að kannast ekki við BOGGA BLAÐAMANN?
Jamm.
Í vikunni sótti ég krakkaorma í minni eigu á leikskólann, svona eins og gerist. Þar sá ég tússtöflu sem er notuð til að láta foreldrana vita hvað grislingarnir hafa verið að gera. Þann daginn höfðu þau gert hitt og þetta, þar á meðal klift einhvurn andskotann.
Hafði kannski eitthvurt barnið skrifað á töfluna? Klórar sér í höfðinu
Það er slæmt ef fullorðið fólk tekur börn sér til fyrirmyndar.
Þar er ég ósammála, mér finnst að fullorðnir mættu mun oftar taka börn sér til fyrirmyndar.
Veður málfarið upp í kliftir
Áðan las ég á fótbolta.net að leikur Liverpool og chelsea væri eftirvæntasti leikur ensku úrvalsdeildarinnar frá áramótum. Þetta orðbragð finnst mér afar einkennilegt; burtséð frá því hvursu mikil eftirvæntingin sé.
Jæja, snillingar. Hvernig ætti þá að umorða þetta með leikinn? Ef við erum að hneykslast yfir málfar annarra verðum við að kunna betur. Spyr sá sem vill víta meira...

Leikur Liverpool og Chelsea er sá leikur í ensku úrvalsdeildinni sem frá áramótum vekur hvað mesta eftirvæntingu meðal knattspyrnuaðdáenda.
Híar á Karg

Ég er akkúrat að horfa á endursýningu á þessu meistaraverki. Ljómar upp
Ég átti afmæli í gær, sem er svosem ekki í frásögur færandi, það gerist á hverju ári.
Fullt af fólki sem ég þekki mismikið sendi mér kveðjur á smettisbrettinu, eins og gefur að skilja.
En ein kveðjan hljóðaði svona:
Til hamingju osfrv. Áttu góðan dag.
Svo í morgun kom ein svona eftirkveðja sem endaði á: Vona að þú áttir góðar dag í gær.
Er þetta að verða almennt? Er kannski einhver hérna sem finnst þetta eðlilegt málfar?
Veikar sagnir með þátíðarendinguna -ti og hljóðskipti í stofni hneigjast til þess að láta sérhljóðsgildi þátíðarmyndar smitast yfir í boðhátt.
Dæmi um slíkt eru boðhættirnir keyptu og or(k)tu. Vísast er boðhátturinn/óskhátturinn áttu grein af sama meiði.
Um þetta hefur verið skrifuð lærð málfræðiritgerð en ég man því miður ekki hver á heiðurinn af þeirri smíð né heldur hvar hún birtist. Sjálfur er ég bifvélavirki.
Á útvarpsstöð einni er dagskrárliður er kallast lof eða last. Þar er fólki gefinn kostur á að hringja inn og lofa eða lasta viss málefni. Þó nokkuð oft hef ég heyrt fólk hringja inn og segja eitthvað á þessa lund " Mig langar að lofa forsetanum" svona eins og viðkomandi vilji lofa forsetanum einhverju. Þetta er næstum eins slæmt og hið ferlega orðskrípi Evróvisjon