Hér skulu aðeins kveðnir sálmar (vísur) um guð(i), kirkjuna, pólitík í Vatikaninu og fleira þessháttar. Allt helvítis guðlast er auðvitað með öllu bannað.
guð á himnum, gefðu mér
góða hluti í skóinn
(og fyrir guðlast ferlegt hér
ég fái ei spark í þjóinn)
Viðbót, eftir athugasemd frá blóðugri. Þetta er ekki keðja.
Góð hugmynd að þræði! Á þetta að vera keðja eða bara sjálfstæðar vísur?
Kristilega kveða skal
og kjaftinn eigi brúka.
Forðast skaltu holdlegt hjal
og hylla eigi púka.
Gjöra sem hér gangi í sal
Góðtemplarastúka.
Kveikið í kirkjum
krosslafs helga,
Álitsgerð snýst um
Ósesonar Helga.
Biblíuna brúka menn
bilaðir á skyni
sem rígfullorðnir eiga enn
ímyndaða vini.
Nú biskup einn fallinn er frá
– farinn og kemur ei meir.
Áður fyrr áttum við þrjá
– nú einungis lifa tveir.
Guðsi vildi plágum planta
praktuglega um alla jörð.
Kirkjupresta, fól og fanta,
fengu að leiða barnahjörð.
Á trúa á Guðsa gafst ei vel.
Glitnir liggur sprunginn.
Næst ég mína sálu sel
Satan, og held um punginn.
til kirkju höldar höldum nú
hér skal ekki beygja
að barnaleg sé barnatrú
er barnalegt að segja
Trúin hún er tæpast stuð
tryllir suma, eintómt puð
Amen - það er eilíft tuð
allt sem tengist þessum Guð.
Ég gleymdi aðeins hvað má og hvað ekki á þessum þræði...
Elska skaltu aðeins Guð
Amen það er geðveikt stuð
Annað rugl er eintómt tuð
óguðleysi er tómt puð.
Ég gleymdi aðeins hvað má og hvað ekki á þessum þræði....
...
Góður var Jóhannes, páfinn minn, Páll
prúður og réttlátur, hafði því vikt,
svo var hann blíður og þægur og þjáll
en það get ég vart sagt um hann Benedikt.
Biskup Kalli boðar trú
úr Biblíuni messar
Óbermið hann Óla Skú
Ótt og titt hann blessar.
Forðum á Golgata festu á kross
frelsarann smásálir þunnar
sem nú hafa á tréverkið neglt fyrir oss
næstum því syndlausan Gunnar.
Dítoxaða drottins menn
dreymir aflausn synda.
Ofurheilög -ingin þrenn-
úr þeim löst skal vinda.
Fuglar dans falla
fylla jörð alla
hvar er guð minn nú
mín ástkæra trú
sit hér með rauðan skalla