Sovétið er saga ein af soraþjóð.
Senn mun horfin hennar slóð.
Slóðina ég slæði nú þó slæmt sé net,
ef ég finn þig er það met.
Metingur er munaður sem man ég ei
Eg er fúið aldrað grey.
Greyið mitt er guggið bæði og grátt að lit.
Einnig má sjá á því slit.
Slit í liðum, slappleiki og slæmska ljót
bagar mig með brotinn fót.
Fót ég séð hef fyrir því að fallið mun
yfirspila okkar grun.
Sovétmenn á sínum tíma supu hel.
Stalínistar vilja vel.
.... úbbs .... þegar þetta datt inn þá sá ég að ég hafði verið á blaðsíðu 14 en ekki þeirri síðustu. Afsakið.
Prófa aftur.
Grunar Stjáni Gunnu Stöng um græskubras.
Mangar hún við Matthías.
Þá er bara að tengja:
Upphafsnótur allra skala eru svo
mæltar: Do re mí fa so.
Sovétmenn á sínum tíma supu hel.
Stalínistar vilja vel.
Æ, nú eyddirðu, svo seinni tengingin brenglast. Glottir eins og fífl
Matthías var merkur karl, hans messur tel
tekist hafa talsvert vel.
Velúrfatnað, flónelskyrtu og frottéslopp
nota ég á nakinn kropp.
Kroppið Nóa klára ég ef kemst það í.
Fer þá megrun fyrir bí.
Bílífið varð býsna súrt er bjórinn þraut.
Illa hvekktur hvarf á braut.
Brautin hún er breið og liggur beint til heljar
þar sem hýrast höfuðskeljar.
Brautin hún er breið og liggur beint að hel
þar sem hýrist höfuðskel.
höfuðskelin heldur um mitt heilabú
brotni hún þá tapast trú
Trúlega er tilvalið að tapa hári
nú á þessu nýja ári.