Kiddi Finni er greinilega svo óeftirtektarverður að meira að segja Upprifnum sést yfir hann.
Billi er í fullkomlegu lagi.
Andþór er allt of sjaldséður hérna, og þá sjaldan sem hann mætir er hann að disssa fólk hægri vinstri mið...
Huxi er svo orðljótur að honum er stranglega bannað að hringja inn í útvarpsþætti. Svo selur hann rúsínum í Bónus.
Nermal er með t-fælni.
Svo er hann líka það sem er kallað sönglandi fábjáni.
Upprifinn gengur laus af því að vantar kaðla til að binda hann fastan.
Kiddi er frá útlöndum svokölluðum, sem eru auðvitað ekki til.
Dula bætir einskis geð, enda peð.
Regína er lufsa af verstu sort.
Garbó er systir Grýlu og var erfiða barnið.
Grágrímur er sonur Axlar-Björns og kallaði pabba sinn nörð.
Kiddi selur tréspíra sem rússavodka á svörtum. Svo hlakkar í honum þegar sveitungar hans verða blindir hver af öðrum.
Huxi stal öllum ljósaperunum af jólatrám Mæðrastyrksnefndar og Hjálpræðishernum. Hann hefur auk þess stolið ljósaperum í þúsundavís víða um borgina.
Nermal þræðir leikskólana og segir börnunum að jólasveinninn sé ekki til.
Kargur er svona snöggur alltaf hreint að taka í nefið til þess að menn sjái ekki að hann er bara að þykjast.
Billi bilaði í gær og enginn hefur efni á að laga hann!Brosir út að eyrum og lyftir báðum höndum upp fyrir höfuð til merkis um að sér hafi þótt þetta afskaplega fyndið