Finn ég fnyk af hroka hér
eða fullt af ælu?
Að ég skyldi voga mér
að yrkja svona þvælu.
Finn ég slæman fnykinn hér.
Finnur þú hér ælu?
Ég hér virðist voga mér
að viðra hérna þvælu.
Höfuðstöfum máske hefur
hallað undan fæti.
Vonandi þú grið mér gefur
fyrir glapræði og læti.
Máske stöfum höfuðs hefur
hallað undan fæti.
Vonandi þú grið mér gefur
fyrir glapræði og læti.
Þvæla minni þykir vísa
þessi sem þú birtir nú.
Fleiri þó hún fengi prísa
ef fylgdi keðju vísa sú.
Sú var harla siðblind mjög
Sófus reynir betur
að kássast ei upp á þau keðjulög
er kveðskaparlöggan setur.
Súdönsku hjörtun þau tifa víst sirka í takt
við tikkið í Grímsneskum brjóstum, þetta má votta.
En sunnlensku iðrunum auðnast þó meiri makt:
Matreidd á sólpöllum niðri í heitum pottum.
Of seinn...
Setur meiri svip á þráð
Sófusinn með glottum.
Eflaust þetta yrkir snáð-
inn í heitum pottum.
Pottaskefill pínlegt grey
plangrar milli sveita.
Hreifst af sveinka hógvær mey
heimasætan feita.
Feita smjörið finnst mér gott að fá mér.
Þrumarinn skal þakinn vel,
þetta besta matinn tel.
Telemark ég tel vera í Tékkó
Þar er jörðin furðu flöt
og firnamikið ekkó.
Ekkó-skórnir öðrum standa framar.
Þeim er gott að ganga í,
það gera flestir Samar.
Samarín er sannarlega sóma drykkur
eftir fjör og fyllerí,
freiðandi og þykkur.
Þykkur böllur þjappa nemur þjó í Vegas.
Hlýðið á, jeg heiti.... Gunni.
Nei, djók, Megas.
Gunni hefur glæpi framið góða í Vegas.
Fyrir gróðann fékk hann Megas.
Megasukk er magnað band
og meiriháttar drullugott.
En vissuð þið að Vala Grand
veitir öllum ..... fondúpott?
Fondúpottrétt fékk ég góðan frænku hjá.
Ligga ligga ligga lá. ♪♪♪
Látalæti lika mér
ljúft er hér að sjá
að Billi er að skemmta sér
síðu yðar á.
(ligga ligga lá)
Lá á fleti ljóshærð mey
með lærum vildi glíma
oft í hennar höfn vill fley
heljarmikið stíma
Stím var eitthvað blöff og brask
blekking græðgismanna
Jafnvel eftir rót og rask
raun er það að sanna.