Ég hata þegar ég myrði þræði með of öflugum innleggjum.
Ég hata nælontvinna.
Ég hata þegar þunglyndislegir dægurlagatextar lýsa minni innri líðan nákvæmlega.
Saman ber "Hjálpaðu mér upp, mér finnst ég vera að drukkna" með nýdönsk.
http://www.youtube.com/watch?v=aGEm9icgrn4&feature=related
Auðvitað má hlæja að þessu en þetta er samt hið versta mál.
Ég er nefnilega meira svona "Wake up its a beautiful morning" týpa.
...stórhríð í maí. Blótar herfilega og rífur hár sitt Eins og þær eru nú krúttlegar í janúar.
Það er ljótt að hata.. hata er of stórt otð..
en burtséð frá því.. ÞÁ HATA ÉG GRÁU HÁRIN MÍN.
papriku
Ég hata það að undirbúa sig undir stórt próf á blíðviðris degi sem þessum!
Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Ég hata þegar ég vakna úríllur og fer í vinnuna og vinnufélagarnir spyrja hálfvitalegra sourninga eins og hvernig hefurðu það.
Ég er allt of þreyttur til að hata núna.
Ég hata að þurfa að vakna í eitthvað sem mig langar ekki til að gera. Sérstaklega fara í banka og eiga ekki fyrir reikningum.
..... allt sem segir mér að gera það sem ég ekki vil á þeirri stundu. Undantekningin er ef ...ð kona vill meir en gamal api nennir, þá svík ég sjálfið og geri það sem þarf. Glottir eins og fífl
Ég hata ekki. Það er of sterk og neikvæð tilfinning. Mér er frekar illa við ýnislegt. En hatur er of mikið. Ljómar
Haur er nauðsynlegt til að komast í gegnum daginn, mæli með að fólk finni sér eitthvað einu sinni á dag og eyði um 20 mínútum í að hata það af lífs og sálarkröftum frá botni síns svarta hjarta.
Það bætir hressir og kætir.
Glottir eins og fífl
Ég hata ekki. Það er of sterk og neikvæð tilfinning. Mér er frekar illa við ýmislegt. En hatur er of mikið. Ljómar
Nákvæmlega.
Ég hata ljósaperur sem springa.
Mér leiðast óskaplega lagið "Gamli grafreiturinn"