Dula er mjúk og tungulipur...
...hef ég frétt.
Huxi getur bakkað fullum vagni af böggum inn í hlöðu með bundið fyrir annað augað.
Vænn er Grétar.
Hlebbi er með allra tunguliprustu mönnum - og að þessu sinni felst engin kynferðisleg tilvísun í þeirri orðanotkun.
Þarfi getur tekið manna mest í nefið. (Vel að merkja; það felst engin kynferðisleg tilvísun í þeirri orðanotkun.)
Blöndungur er ljómandi fallegt orð og hæfir þar af leiðandi vel sínum notanda.
Hvurslags er hvurs manns hugljúfi.
Núrgis er algjörlega einstök.
Það er vægt til orða tekið þegar sagt er að Þarfagreinir sé snillingur.
Wayne Gretzky ratast iðulega rétt orð í munn.
Línbergur er hörku partíljón og nikkuspilari.
Það væri varla hægt að kalla Huxa gull af manni. Hann er frekar platína af manni
Það ætti alltaf að velja Garbo sem Fjallkonuna á 17. júní.
Nermal má ekkert aumt sjá og aðstoðar alla samborgara sína sem eru í vanda staddir.