xT Til hamingju Þarfi.
Gefur Þarfa einn skammt af snörueyði í rafmælisgjöf fyrir tilvonandi leik
Innilega til hamingju með rafmælið Þarfi. Skál fyrir þér og þínum reynslumikla aldri! xT
Oft var þörf en nú er Þarfi...
...rafmældur.
Til hamingju með það.
Færir Þarfa allt tvíundarprímtölusafnið innbundið á hörðum diski
Hnyttni, festa, gáfur, grín,
góðmennska úr honum skín.
Fróður hann um flestallt er,
frábær penni leynist hér.
Þarfagreinir heitir hann,
hollur sínum málstað ann.
Allt sem prýða má einn mann
og meira - ég í honum fann.
Til hammó með rammó Þarfi. Loksins kominn á skólaaldur!
Til hamingju Þarfi! xT
Þerrar tár úr auga
Ég þakka innilega fyrir dásamlegar kveðjur, og þá ekki síst ljóðið eftir hann hvurslags. Þetta verður geymt. Freistandi að hreinlega ramma þetta inn einhvers staðar.
En í dag fær hin sjaldséða krumpa góðar kveðjur.
Krumpa fær hamingjuóskir með 6 ára rafmælið. xT Er hún ekki annars enn keisaraynja Baggalútíu og ég keisarinn? Klórar sér í höfðinu
Krumpa - Rammæli - NÚNA!!
Til hamingju með 6 árin.
Yndislega allra handa eðalakvinna
ekki má það vera minna
Rafmæli má sjálfsagt sinna
mér sýnist þú mig vera að vinna
í veislunni þig vil ég kinna.
víst má rími núna linna.
Til hamingju með rafmælið kæra Krumpa.
Og svo vil ég rétt bæta við að me´r þykir mjög miður að hafa mist af því að óska Þarfa til hamingju á réttum degi en geri það þess í stað núna.
Til hamingju Þarfi.
Vimbill Vamban fær rafmælis- og saknaðarkveðjur frá Kargsbúinu.
OFFARI fær rafmæliskveðju dagsins. xT
Offari fær sérlega grænar rafmæliskveðjur frá Huxi.inc.