Já, og er búin að gera það lengi.
Hefur þú verið í tveimur vinnum samtímis?
Já ég hef verið það lengi. Útivinnandi og heimavinnandi.
Hefur þú lokið hauststörfum?
Margoft, þó ekki þetta haustið. Er ekki farinn að slátra neinu enn.
Hefir þú farið í leitir í haust?
Nei
Hafið þjer farið fyrir rjett ?
Nei, Ég hef samt oft rétt fyrir mér
Hefur þú prjónað trefil þar sem lykkjufjöldinn var prímtala?
Nei.
Hefur þú einhvertíman gist fangageymslu?
Já, það hefur Madaman gert.
Hefur þú bjargað deginum?
Já já
Hefur þú setið yfir sjónvarpinu heilt kvöld og uppgötvað að auglýsingarnar voru besta efni kvöldsins?
Nei. Enda þarf ekki að sitja yfir sjónvarpinu til að komast að því. Það er nóg að lesa dagskrána.
Hefur þú móðgað einhvern í dag?
Ótrúlegt en satt, nei...
Hefur þú hrósað einhverjum í dag?
Ótrúlegt en satt, já...
Hefur þú skammað einhvern í dag?
hefur þú (ef þú ert í Meyjunni) fulla vitneskju um það hvenær þú varst meyja og hrein mey síðast?
Já
Hefur þú tjargað og fiðrað nýliða nýlega?
Nei, það er alveg kominn tími á svoleiðis.
Hefurðu öðlast nýja sýn nýlega.
Ja, ég fékk mér nýar linsur í fyrra, telst það?
Hefuru einhvertíman hugsað: " af hverju er ég ekki gul eins og Woody?"