Vér fögnum endurkomu Stelpsins.
Fagnar gríðarlega.
Má bjóða kóbaltblandaðan blút?
Ljómar upp og þiggur blútinn
Þökk skaltu hafa fyrir þetta, kæri Fergesji, enda ár og dagar síðan ég smakkaði blút síðast.
Og fyrir þráðinn: Akkúrat núna er ég berjast við að halda augunum opnum og velta fyrir mér að skríða í bælið...
Láta mér leiðast.
Ég er að hanga á netinu og fara ekki í sturtu, rétt eins og ég ætti að vera að gera.
Madamman er að sporðrenna síðustu pönnukökunni, en þvílíkar krásir voru töðugjaldakaffi heimilisins.
Fylgjast með Upprifnum kenna krökkunum að spila Óþelló... já það er ekki ráð nema í tíma sé tekið að leyfa börnunum að fá almennilegan uppalanda Ljómar upp
Velta því fyrir mér hvaða PartyZone-skrá ég ætti að spila í kvöld.
Ég ætti að vera löngu sofnuð en í staðinn sit ég og pikka inn sögur til að fá þær birtar í kvennatímarit sem kemur út vikulega.
Dula, er landinn hans Uppa svona góður að þú hleypir krökkunum í hann?
Er annars að akkúrat núna að lofa sjálfum mér að vera duglegri að blanda mér inní hina geðþekku kommúnu Gestapóa á komandi vetri.
Bíða rólegur eftir að bananabrauðið sem er í ofninum hjá mér verði fullbakað.
Bíða eftir að verkjalyfin virki svo ég getii farið aftur að sofa.
Þykjast hlusta með athygli á fyrirlestur sem heitir Demokratisering, deltagelse og indflydelse på arbejdspladsen.
Melta kvöldverðinn sem ég fékk á Kargsbúinu.