Já ég átti meira að segja í mestu vandræðum með að gugla þeim Andrésum upp, og þá er nú mikið sagt.
Hvur orti:
Þetta færa þarf í stef,
þó ég hafi legið;
Lífið væri erfitt ef
enginn gæti hlegið.
Mér finnst ég vera nýbúin að lesa þetta. Ööö, Ragnar Aðalsteinsson?
Ég prufa að fara aftur í tímann og giska hér mað á Bólu-Hjálmar.
Nei, ekki var það Bólu-Hjálmar. Smá vísbending; Þessi hagyrðingur var unglingur þegar Bólu-Hjálmar dó.
Halldór Blöndal?
Brosir út að eyrum og lyftir báðum höndum upp fyrir höfuð til merkis um að sér hafi þótt þetta afskaplega fyndið
Úr því getið var á Káin, getum vér á Stephan G.
Ræskir sig Já, er semsagt komið að mér?
Þetta ljóð finnst mér fallegt, en veit einhver hver orti?
Ég skrifað hafði lítið ljóð
á lúið pappírsblað,
en þótti í engu um það vert
og ekkert skeytti um það.
Svo týndist þetta litla ljóð
og lagðist gleymsku í,
en hending síðar örfá orð
mér aftur færði úr því.
Þá fann ég, þessi fáu orð
úr fyrnsku endurheimt
mér voru ei lengur lítils verð,
þótt ljóðið væri gleymt.
Nú vildi ég gefa gull mitt allt
að gjaldi í kvæðis stað.
Mér finnst, ég hafi aldrei ort
neitt annað ljóð en það.
Davíð frá Fagraskógi?