Nei! Þetta er ekki fíkn! Ég get alveg hætt þegar mér hentar! Og hananú! Strunsar út af sviðinu og skellir á eftir sér
Kemur aftur til að lýsa næsta póa
Næsti pói á við geðheilsuvandamál að stríða og vill ekki viðurkenna það.
Strunsar aftur út af sviðinu og skellir á eftir sér
Já nei nei... ég er með geðheilsuvandamál... og viðurkenni það fúslega.
Næsti pói veit hvaðan á hann stendur veðrið.
Suð-suð-austan-suð, skygni skítsæmilegt. Það er veðrið í dag.
Næsti pói er með græna fingur og gengur þess vegna alltaf í hönskum.
Ég er einnig með grænar tær, og geng þessvegna alltaf í sokkum.
Næsti gestapói svarar þessu innleggi
Næsti er skrafgefnari en Bakaraóbermisaukaegóið.
Starir þegjandi út í loftið
Næsti pói er ekki vaknaður enn.
Ha? jú víst.
Næsti Gestapói hefur blæti fyrir að lakka táneglur sínar neongrænar.
Oh, já! Og skera eina af og heima milljón dollara.
Næsta Póa langar í milljón dollara.
Nei, ég hef ekki pláss fyrir svoleiðis.
Næsta póa langar í hest.
Já, þá yrði ég svo sannarlega kóngur um stund.
Næsta gestapóa langar í úlfalda.
Það væri töff að mæta á úlfalda í vinnuna
Næsti Gestapói er að reyna að búa til úlfalda úr mýflugu!
Nei.
Næsti pói vill hafa aðeins meira myrkur á nóttunni akkúrat núna.
Nei, mér finnst bjartar sumarnætur það besta í heimi.
Næsti pói býr í sk. útlöndum.
Þangað hef ég aldrei komið, og langar ekki til. Ég fór eitt sinn útyfir Ölfusá, og fer ekki aftur.
Næsti pói kann að skrifa á hvolfi. ... Með penna og blaði sko - það er ekki lengur svo töff að skrifa með ritvél á haus.
Að sjálfsögðu.
Næsti gestapói hefur ímugust á símum.
Nei, ekki teljanlegann
Næsti gestapói er svo feiminn að hann þorir ekki einusinni að panta pizzu símleiðis.