Það stafar enginn hætta af mér...það er nánginn fyrir aftan mig sem skýtur mér skelk í bringu.
Er hann jafn sætur og þú?
Bósó kallaði á þig karlinn minn, komdu núna inn, ég ætla að jeta þig Gefur frá sér vellíðunarstunu Fyrst verð ég að segja að mér finnst þetta frekar strangar reglur. En það er kannski bara þörf á þessari eyju svívirðinga og dauða. Mér finnst þessi síða samt nauðsynleg fyrir fólk eins og mig sem verður að koma hugsunum sínum á vegg. Glottir eins og fífl
Ekki er þetta eina hugsunin sem þú þarft að koma frá þér? Klórar sér í höfuðpaurnum
Bósó kallaði á þig karlinn minn, komdu núna inn, ég ætla að jeta þig Gefur frá sér vellíðunarstunu Fyrst verð ég að segja að mér finnst þetta frekar strangar reglur. En það er kannski bara þörf á þessari eyju svívirðinga og dauða. Mér finnst þessi síða samt nauðsynleg fyrir fólk eins og mig sem verður að koma hugsunum sínum á vegg. Glottir eins og fífl
Vér höfum til yðar tvær spurningar:
Hvaða reglur eru svo strangar?
Hvur gaf yður leyfi til veggjakrots?
Hér skal allt snyrtlilegt.
Hlutfallið milli lengd handleggja og fótleggja finnst mér ennþá full öfugt hjá Lúsý blessaðri.
Hún er bækluð greyið, en hver hefur ekki gott af því að vera bent á endrum og sinnum út af ólaga líkama sínum.
Lúsí er bæði lævís og lipur. Einnig selur hún varasalva á tilboðsverði á þriðjudögum.
Grunsamlegt. Vjer erum einmitt stundum Glúmur á þriðjudögum Klórar sjer í höfðinu.
Loksins legg ég orð í belg, og það um miðja nótt. Þér ættuð að reka mig stax. Röndóttur rabbabari og hoppandi hindiber núna er ég í djúpum.
Ég kann að telja upp að sjöhundruðfimmtíuogátta en segi aldrei töluna sem kemur á eftir þremur.
Það var og!
Lúsý er sokkin upp að hnjám í flórnum, eigum við ekki að gera eitthvað í því? Fjögurtíu og fjórir menn AF STAÐ !
Hún er enn nýliðaapi, svo ætli hún megi ekki sökkva.
Það hefur hingað til einn Gestapói, sem sé aðeins einn, sem hefur fengist við skógarhögg. Og það hefur verið ég, Kiddi Finni. Skógarhöggsmaður og timburfleytari.
Og nú þarf að spyrja nýliðan Sigurlás, með hvaða rjett gangið þjer um með starfsheitið eða viðurnefnið skógarhöggsmaður?
Ekki svo að enn eru glæsileg furutré í skógum Baggalútiu, en samt óskum við þess að fá aðeins heyra meira um starf yðar við skóginn.