— GESTAPÓ —
Skammast í Bundnu.
» Gestapó   » Kveðist á
        1, 2, 3 ... 56, 57, 58 ... 98, 99, 100  
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
lappi 2/3/10 23:46


Móri ljótan hefur haus
hengilmænu bjáni.
Svo er Móri makalaus
marbendill og kjáni.

lappi
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Hugfreður 3/3/10 12:23

Þá gæfu hefði og glaumlífið
gæðingurinn Lappi.
Ef líktist eigi andlitið
óskeindum þjóhnappi.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
3/3/10 18:29

Hans er sérhver hugsun ill,
hann er flón og sauður.
Skárri yrð'ann ef til vill,
ef hann væri dauður.

Aðgát skal höfð í nærveru sálar.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Heimskautafroskur 3/3/10 19:54

Skrítið þykir skáldið Pó,
þeir skoða hann oft á RALA.
Því typpi vill hann troða í þjó
Tinkívinkí og Lala.

vér kvökum og þökkum
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
hlewagastiR 3/3/10 20:19

Fanna skautar froski bláum
fíflið allrar heimsku val
andans vart nær hæðum háum
heimskautanna í öldudal.

Þetta ritar ósköp úldið, aldið skar. • er falskonungur forðum var.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Upprifinn 3/3/10 23:08

varla eins og aðrir menn
ei þó kemst á söguspjöld
bara hann sig birgi enn
bak við hemsins gluggatjöld

Ríkissáttasemjari Baggalútíska heimsveldisins. Vonbiðill hinnar keisaralegu hátignar, hirðskáld og varavaravarakeisari. Níðskáld hinnar konunglegu hirðar. Nánast óþægilega kurteis...Besserwisser og Negradýrkari.‹Ljómar upp.›
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Barbapabbi 4/3/10 00:52

Upprifinn er á að sjá
undarlega hissa.
Upp í vindinn ávalt sá
álpast til að pissa.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
hlewagastiR 4/3/10 21:48

Barbafaðir himinhæða
heyr nú loksins allra kvak
sem beinlínis þig biðja að snæða
blásýru, þú leiða hrak.

Þetta ritar ósköp úldið, aldið skar. • er falskonungur forðum var.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Barbapabbi 4/3/10 22:28

Hlebbi er eins og grálynd geit,
grænn má undir tusku þrúgast.
Hver sem úldinn álfinn leit
afsakast á meðan kúgast.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 4/3/10 22:51

Allra mesti er bögubósi,
barbaranna pabbadýr.
Ætt'að bind'á bás í fjósi,
ber af honum sjerhver kýr.

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Upprifinn 4/3/10 23:06

þykist vita vel um allt
en verst er kvörn á fróni
ekkert kann á kóabalt
og koksar á plútóni

Ríkissáttasemjari Baggalútíska heimsveldisins. Vonbiðill hinnar keisaralegu hátignar, hirðskáld og varavaravarakeisari. Níðskáld hinnar konunglegu hirðar. Nánast óþægilega kurteis...Besserwisser og Negradýrkari.‹Ljómar upp.›
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Hugfreður 4/3/10 23:37

Rjúpur -hami flíka fanna-
frónsins bestu tetur.
Upprifinn er einn sá manna
er aftaní þær setur.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
hlewagastiR 5/3/10 00:10

Með fúlan trant og Freðinn Hug
fantur, öllum leiður
skilur ekkert, skortir dug,
sköndlabossinn gleiður.

Þetta ritar ósköp úldið, aldið skar. • er falskonungur forðum var.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Upprifinn 5/3/10 02:45

kvalir sálar líður lið
sem litla peyjann hittir
þá fyrst að hlægja færum við
ef fram á nasir dittir.

Ríkissáttasemjari Baggalútíska heimsveldisins. Vonbiðill hinnar keisaralegu hátignar, hirðskáld og varavaravarakeisari. Níðskáld hinnar konunglegu hirðar. Nánast óþægilega kurteis...Besserwisser og Negradýrkari.‹Ljómar upp.›
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
dordingull 5/3/10 22:24

Óða sá ég galna gný
göslast yfir fljótið
Líkist þetta Steina strý?
Standið upp og skjótið!

Köngulóarapakonungsríkisarftakinn.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Vímus 6/3/10 05:42

Viðbjóðslegri verða menn
varla hér .a Lutnum.
Helvítið víst hangir enn
haugfullur á stútnum.

Ég er ekki díler. Ég er læknir, lyfjafræðingur, lyfsali og fjölfíkill! • Þar að auki er ég skipaður Efnavopnaráðherra Baggalútíu
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Hugfreður 6/3/10 10:00

Að kvöldi til kveikir á prímus
og kyndir sitt höfuð í mínus
Duft bálið bræðir
brátt kemst í hæðir
helskakki hálvitinn Vímus

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
7/3/10 01:53

Hugfreður úr truntu tregri
tók sér heila - og skortir vitið.
Hann er verri' en hnit með tegri
og herpes-klamidíusmitið.
Vart ég nokkurn viðbjóðslegri
vinstrimann hef augum litið.
Stórum hef ég stundum fegri
stykkjum kúkað, drullað, skitið.

Aðgát skal höfð í nærveru sálar.
        1, 2, 3 ... 56, 57, 58 ... 98, 99, 100  
» Gestapó   » Kveðist á   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: