— GESTAPÓ —
Hefur þú?
» Gestapó   » Lygilega vinsælir leikir
        1, 2, 3 ... 724, 725, 726 ... 839, 840, 841  
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Kargur 10/2/10 23:08

Auðvitað, annað væri kjellingaskapur.

Hefir þú náð að forðast eurovision þetta árið?

Það held ég nú!
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Blöndungur 11/2/10 00:50

Já, það get ég sagt með stolti. Ég hef ekki heyrt eitt einasta Evróvisjónlag (og ekki heldur kandídata í það) það sem af er þessum vetri. Þó má vera að ég hafi heyrt Waterloo í remixi á útvarpsstöð um daginn.

Hefur þú drukkið sólblómaolíu sem slíka?

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Lopi 11/2/10 09:17

Nei

Hefur þú plægt með þrískeraplógi?

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Kargur 11/2/10 10:51

Jamm. ‹Fær sér almennilega í nefið›

Hefir þú skroppið á milli bæja á Zetor?

Það held ég nú!
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Kveifarás 11/2/10 11:32

Eigi höfum vér gert slíkt.

Hafið þér synt í 0 gráðu köldum sjó?

Mr. Cabdriver, Engir skápar eru óhultir. Sérlegur einkabílstjóri Flottustu Hljómsveitar Ízlands. Óopinbert viðhald. Athyglismella með meiru!
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Anna Panna 11/2/10 18:09

Nei og miðað við hvað mér finnst 15 gráðu heitur sjór vera kaldur þá held ég að ég geri það ekkert á næstunni.

Hefur þú blikkað öðru auganu og gert „byssur“ með báðum höndum til að leggja áherslu á mál þitt?

♦ brjálaði demanturinn ♦ valkyrja ♦ elvis ♦ nýliðaskelfir, konan með hinn stimpilinn ♦ blámannagrúppía ♦ fæst nú einnig með háskólagráðu ♦
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Grágrímur 11/2/10 18:41

Eh nei... er það ekki glæpur gegn mannkyni?

Hefur þú sleppt því að eyða pening 3 daga í röð, ekki eytt krónu?

Einfættur Gestapói númer 2. • Atvinnuátfíkill
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Dularfulli Limurinn 11/2/10 19:32

Kannski ekki sleppt því, en einu sinni fattaði ég á 4. degi að ég var ekki búinn að eyða krónu og einu sinni gat ég ekki eytt í 3 daga. Var þá uppi á Langjökli.

Hefur þú farið á Jet Ski ?

Sérlegur asnahalahanastélskokteilhristari og einkaþjónn. Sérfræðingur í Eskimóaflippum.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Tina St.Sebastian 11/2/10 21:41

Nei.

Hefur þú sleppt því að borða í meira en sólarhring án þess að það væri að læknisráði?

- Passív-aggressívur erkióvinur ritstjórnarmeðlima hverra nöfn hefjast á 'E' - •  Verndari alls karlkyns- Biskup yfir westurhluta Íslands- Umsjónarmaður, hönnuður, verktaki og æðsta yfirvald í málefnum Torgs Hinnar Heilögu Ritstjórnar-
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Dula 11/2/10 22:29

Nei.

Hefurðu boðið þér sjálfum í mat í blóðbankanum ef þú ert svöng/svangur.

Kosta og kynjamálaráðherra Baggalútíu. •  Forsetafrú, líka PRINSESSA og settur heilbrigðismálaráðherra (skv ráðherra og embættismannalista baggalútíu ) •  Gestgjafi Duludjammsins. • 22. kast er mitt !
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst

Nei
Hefur þú sagt eithvað bjánalegt við nýu kærustu sonar þíns og þau hætt að vera saman, vegna þess?

Áfengi er skaðlegt eiturlyf sem brýtur menn niður bæði andlega líkamlega og félagslega • Það breytir persónuleikanum og deyfir siðferðisvitundina. Það er einnig nærandi og styrkjadi , gefur hraustlegt og gott útlit og bætir meltinguna .
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Tina St.Sebastian 11/2/10 23:29

Þar sem ég á engan son, verð ég að segja nei. En ef ég ætti son sem kæmi heim með kærustu tækist mér örugglega að skemma það.

Hefur þú vakið athygli b2?

- Passív-aggressívur erkióvinur ritstjórnarmeðlima hverra nöfn hefjast á 'E' - •  Verndari alls karlkyns- Biskup yfir westurhluta Íslands- Umsjónarmaður, hönnuður, verktaki og æðsta yfirvald í málefnum Torgs Hinnar Heilögu Ritstjórnar-
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Dula 11/2/10 23:31

Nei alveg ábyggilega ekki, hef ekki hugmynd um hvað b2 er.

Hefurðu verið aðal umræðuefnið á er.is

Kosta og kynjamálaráðherra Baggalútíu. •  Forsetafrú, líka PRINSESSA og settur heilbrigðismálaráðherra (skv ráðherra og embættismannalista baggalútíu ) •  Gestgjafi Duludjammsins. • 22. kast er mitt !
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Madam Escoffier 12/2/10 00:11

nei, hins vegar hefur maddamman málað bæinn rauðan á var.is

Hefur þú slegið meðleigjanda þinn með pönnu í andlitið?

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Dula 12/2/10 00:30

‹Brosir út að eyrum og lyftir báðum höndum upp fyrir höfuð til merkis um að sér hafi þótt þetta afskaplega fyndið› Nei , ekki ennþá, það styttist nú samt í að frumburðurinn fái eina slíka ef hann fer ekki að haga sér einsog siðuð manneskja.

Hefurðu fengið eitthvað í hausinn frá meðleigjandanum þínum.

Kosta og kynjamálaráðherra Baggalútíu. •  Forsetafrú, líka PRINSESSA og settur heilbrigðismálaráðherra (skv ráðherra og embættismannalista baggalútíu ) •  Gestgjafi Duludjammsins. • 22. kast er mitt !
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Kargur 12/2/10 07:17

Nei. Það skýrist aðallega með því ég hefi aldrei haft meðleigjanda.

Hefir þú klifrað upp í vindmyllu?

Það held ég nú!
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Jarmi 12/2/10 11:29

Ekki ennþá, en það gæti vel gerst í náinni framtíð.

Hefur þú séð alvöru konung, lifandi lífi?

Jarmi - 110 oktan og helblekaður á því. Dólgur.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Billi bilaði 12/2/10 12:57

Nei, það held ég að sé öruggt.

Hefur þú staðið á öðrum fæti, hallað höfðinu til annarar hliðar, lokað auganu á hinni hliðinni, nuddað þér um magann (í hringi) með hægri hendi og teiknað geislabaug yfir höfði þér með hinni hendinni...
... og gert þetta allt á sama tíma?

Sérlegt hirðkrútt og gæludýr hinnar keisaralegu hátignar • Sitjandi á kornflögu, bíð ég þess að vagninn komi
        1, 2, 3 ... 724, 725, 726 ... 839, 840, 841  
» Gestapó   » Lygilega vinsælir leikir   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: