Krónan er líkþrá og leggur upp tær.
Það leggur af henni náþefinn.
Íhaldið bíta nú ESB-flær.
Að sækja um - þar liggur efinn.
Dabbi garmur drullusokkur drepast má
eyjasundin út við blá.
Hugann oftast læt ég líða
ljúft um gömlu tjörnina.
Einnatt þá til Esjuhlíða
andinn hreyfir kvörnina.
Ég er eins og tírætt Tröll
ef tek í fax á tryppinu.
Atómljóðin eru öll
órímuð, án forms og reglna.
Líkt og dagsins draumahöll
dragi okkur í undirdjúpin.
Rit- er -stíflan orðin stór
Sting ég haus í sandinn.
Ekki fyrr en eftir bjór
í mig kemur andinn.
Varla telst ég vesalingur.
Voða fyndinn, sterkur, slyngur.
Á mér er sko enginn bagi
og allra síst að næturlagi
Snorri í Reykholti réð forðum daga
Reit fræði og orti til lítilla baga.
Og er Gissur með jarlinn
fór að finna karlinn
Þá bannaði Snorri að höggva eða saga.
Góðir kettir gelta hátt
Geta mýslur mjálmað brátt.
Þjóðin býsna þreytt er orðin
Þjáð og vart til lands hún sér.
Valdhöfum þá velur orðin
vond, en ekki handa sér.
Mál- er -fræðin orðin góð.
Orða færið miður
Af orðum ærist Rósin rjóð.
Orðast tærust íslensk ljóð.
Æ, hvílíkur leir.
____________________________________________________________________ ...
Mig fær ginið margoft til
að mála bæinn rauðan.
En vodkað mér þó veitir yl
og gerir margan dauðan.
Senn er út sólarþraut
senn mun vorið koma.
Einhver sagði að Dabbi í seðlabankanum nú minnti sig á Adolf í búnkernum örlagavorið 1945.
Líkt og Adolf áður fyrr
ætlar sér að sitja kyrr.
Komma herir hópast að
huga á fiður og tjörubað.
Göbbe ...
Krónugengið flýtur fúlt
að feigðar- djöfuls -ósi.
Davíð upp við píslar púlt
prangara vefur hrósi.
Englandsbanki geymir gullið.
Glaðlyndur er fýrinn Brávn (Brown)
Það er ekki nóg að nenna
og nurla frá degi til dags.
Kreppan er Davíð að kenna
karlfíflið hengjum því strax.
Munið þið eftir þáttum sem voru sýndir á RÚV ca. 1980-1985 um líf í smábæ í Colorado frá 1700 og e-h til nútímans (þ.e. þáv. nútíma.
Algerir snilldarþættir, þarna voru indjánar og kúrekar og þurrka ...