Mafían er mild og góð.
Mannsins yndi' er tíðablóð.
Afsakið Billi. Ég smellti á svarkrækjuna áður en þú hafðir botnað og sá því ekki þitt innlegg. Þannig að gefið mínu svari bara engan gaum. Ég myndi bara botna þinn helming, Billi, en ég legg ekki í að ...
Diðrikskrimma dái mest.
Dánumann skal kalla prest.
Á voru landi tek ég lest.
Botninum ég bráðum næ,
búin sæluvíman.
Ég skal botna skeytluhræ.
Ég skal líka rím'ann.
____________________
Himneskt fæði' er hamsatólg.
Hungri mínu eyðir.
Bóndinn elskar kýr og ær
-- í angist sinni myrðir þær.
Að Ísland gangi' í ESB
mun yrkju jarðar setja' á kné.
Hve iðrar mörg líf eitt augnakast
sem aldrei verður tekið til baka?
Hve iðrast að morgni íkonoklast
sem ásanna líkneski taka?
Hve eflast í trú sinni’ á alabast
þeir andar sem raunirnar þjaka?
Adolf borðar aldrei kjöt
Forðast skulum Framsókn sem við lifum
Stalín heldur styðjum vér
en stækju' af þeirra hrifum.
Hringjarinn frá Notre Dame
Góður maður greindur, sneyddur góðri lukku,
hjarði' í turni kirkjuklukku-,
kúrði þar er aðrir drukku.
Lapplensk stiklusonnnetta?
Ef jörðin þinn er laus við lömb,
lifa þarftu með tómri vömb.