Stúlkan mín á hlutabréf í Högum
og hórbúllu við Laugaveg
Kæri Goggur, hvaða ár eigið þjer við?
Rjúpan mín, hún Rúna,
röltir út á brúna,
þar hyggst mærin múna,
mætum þangað núna.
Að MJER frátöldum.
Ingjaldsfíflið.
Stúf- mun vikan helguð -hendu hérna, sko
þúsund aldir, eða svo.
Er matur bráðum, mér er spurn?
Má þér bjóða eggjaskurn?
Framámenna frækin sveit;
froskurinn og ég.
Eingin sveit er að ég veit
svo æðis- fokking -leg.
Hvar er Íslands kamrafjöld?
Hverjir rukka töðugjöld?
Slóðalegu slúbbertarnir slæpast um
stofugólf í stígvélum.
Oft er gos í gosflöskum.
Tæjur eru tælandi í Thaílandi,
smjaðrandi og smælandi
smælingjunum hælandi.
Hvenær verða kostningar?
Kannast þú við Næstabar?
Er Næstibar í MyanMar?
Brandara um Brand Ara
bullar Óli
með standara og standara
á stolnu hjóli.
Bóndi upp úr belju-krappi
byltir sér — er kveður Lappi.
Heima bíður Lína lessa,
Lappi gekk að eiga þessa,
séra Geir bað guð að blessa,
gretti sig og hló,
mér er um og ó.
Leikur nú líka vafi á vafanum?
Víst er Billi algjör illi
enda silly talinn.
Upp úr dilli og dassi af chili
drengir, grillum halinn.