Ljóðaraus og limruþvarg,
— það ljóta garg —
finnst mér verra en fiðlusarg
og fnæsi: ARG!
Bölverkur er horfinn hér
- það hryggð er mér -
Senn er desem- búinn -ber.
Sem betur fer.
Arna selur okkur mjólk
(að því menn frá greina)
en MS selur okur-mjólk
(ekki er því að leyna).
Kusur hafa kattarskott.
Kosningin var ansi flott.
Össur reyndi aldrei plott.
Enginn hafði sigur — not.
Upprifinn með öxl á herð,
eymdartuska lítilsverð,
hann er af þerri gráu gerð
sem gálur vill — en má ei serð-
a.
Haftið verðu, heillin góða, haltu því;
þó Trump þar vilji taka í.
Gættu þín og gáðu að þér, góða kona.
Láttu ekki alltaf svona.
Gamla lóða lufsutík,
landins sóðabrók,
sér er Blóðugt sljáfri lík,
sýgur þjóðarlók.
Báru mína, brussuna frá Berufirði
ég ákaft syrði ef ég þyrði.
Hríðin dynur okkur á,
öðlinga og hrappa
eina glætan oft er þá
að eiga skáldið Lappa.
Farðu Lappi að fróa þér,
fúli, slappi djókur,
gamli hrotti og hóruver,
hælisrottulókur.
Hvað á ég að kjósa næst?
Hvar er svona mikið dæst?
Spartverkjarnir sportið iðka, spranga um
teinréttir á tanganum.
Hefur þú fitufordóma?
Fannstu krakka holgóma?
Fílar Hannes hégóma?
Hafiði fundið vorblóma?
Kýrin yxna, konan æst,
kötturinn breima, tíkin lóða
Drottinn minn góði, Djísös Kræst,
djöflasýru þarf ég góða.
Djarfar myndir Danmörk frá
(dúfnahúsasmíð)
valdið hafa vanda hjá
vorum æskulýð.
Vagar hér á vappi Lappi,
vesældómsins drullu-bulli,
úldnu spýr hann krappi af kappi
úr koki sínu, fullu af sulli.
Góðan daginn, góði minn,
gamli tappi.
Kvæðagerðarkóngurinn,
kæri Lappi.