577
Þegar bóndi vaknar votur
verður rekkjan ansi snotur
Nú árinn er liðinn í öfganna skaut,
með uppþembdan kviðinn af mengun.
Halda skal friðinn með hafranna graut,
hæstu fá sviðin svo einkunn.
Þjóðlegur botn hvað varðar mataræði og rímorðið skítared ...
Föstudögum fagna ég
fjandinn gengur laus
Streyma frá þér stafirnir
strekkir vel á ró
labbar gegnum læstar dyr
leysir gátur þó
prettum, svíkjum, svörum "já"
svindla, kalla, hreykja
rettum víkjum vörum á
vindla alla reykja
ég hef barn undir belti
hún brosti og kossi á mig smellti
það er vanmetið hve
eitt vírherðatré
virkar, þótt ógæfan elti
Vetnisoxíð viljum blautt
vatnsís myljum sundur
skeður margt en skiljum trautt
skall á þiljum brundur
bíð ég þar en verð ei var
vonað barinn opni
Skála nú í dauðans drykk
dash af landa sulla út í
næði fékk og gólf um gekk
hann gaf mér ekki tíma
mig að kvekkja fjandinn fékk
með fantahrekk í síma
vergjarnar og verklegar
vinna úti
stórgerðar og sterklegar
standa inn ellegar
Læðan núna læðist að mér
lymskuleg og hljóð
einhvernvegin þokar það mér
þangað sem hún stóð
sjálfur er satan kominn
sest og tottar pípu
bið að heilsa, bið um frið
bið um að þið staldrið við
bið til guðs að biðla sið
bið og doka við hans hlið
feginn út í fjós ég stekk
fyrir utan rigning lemur
legin eftir ljósabekk
ljóskan sem að ánægð kemur
(okkur ágætlega semur)
ofn - vinkill - gaman - hringur
Gráni hann er gæðaklár
gáskafullur foli
knapi hans er klæðafár
Eina viskíflösku fann
falda undir rúmi
Legg ég á það blátt við bann
að bergja á með Glúmi
því Glúmur hann er glasatæmir