Sussu suss, elski börnin mín. Faðir okkar allra fylgist með okkur og passar upp á að við gerum enga vitleysu. Þið kallið það kannski samsæri, stóra bróður, fasisma, nasisma, kommúnisma, Davíð Oddsson ...
Göturnar fullar
af lifandi snjókörlum
með steinaaugu
Kámhundar!Blótar herfilega og rífur hár sitt
Heimurinn er mín nektarnýlenda
Kemur inn, ráðvilltur
Afsakið, hafið þið nokkuð séð Jesús?
Og meðan ég er hér, vill einhver taka eins og eina skák?
klórar sér í höfðinu
Hvernig væri nú að Leikfélag Baggalútíu færi í lærdómsleikhúsferð. Mæli ég þá sérstaklega með leikritinu Þú veist hvernig þetta er sem Stúdentaleikhúsið sýnir þessa dagana. Massagott leikrit alveg.
Við hér í Vatíkaninu erum ánægðir með undirmenn okkar ykkar megin. Minnum á að það er engin mafía. Minnum líka á jólahlaðborðið fyrir "félaga" okkar sem haldið verður 10. - 14. desember. Þið vitið hva ...
Ósnortin var laut
í skjóli tveggja hlíða
sem hönd raskaði
Sjá ekki bölvaðir sauðirnir neitt
sem inní Heimdall þeysa?
Hlutverkið þeirra og Heimdalls er eitt;
Höfðingjans lopapeysa!
Á skítakamri skafa dagblöð skúbbi óð.
Þefa uppi böl og blóð,
bera fyrir sína þjóð.
Dropinn reyndist dágott spaug,
dýrt þó einni rolu.
Vodkann eins og vitlaus saug
vaknaði' oní holu.
Jólaglaumur jafnan gefur
jólaglögg í skóinn.
Sitthvað hann þó sopið hefur
sjálfur, drykkjukjóinn
Titlar einir telpu þessa
tæpast gera munu flotta.
Kannski er hún Linda lessa,
lepur píkur, vill ei totta.
Sveittur hamast, sé þó til
sífells ama flíkin.
Fer þá gaman fyrir bý
fjandans drama-tíkin.
Glasi lyftir geðið hátt
glöggið tæmir fljótt
Hellt á ný og hlegið dátt
heila jólanótt
Það var lán að þannig fór
um þínar tennur
Því að betur núna bjór-
inn bara rennur
klórar sér í höfðinu hmm, eitthvað virðist morgundrykkjan hafa farið illa í mig og ég lesið vitlaust í kvæðið að ...
Lendaskýlur líst mér á
limamjúkum kauðum
fínum klæðast fleiri þá
fagurlega rauðum
Syng í regni súran brag
um svikið hjarta
Held að væri heldur lag
að hætta að kvarta