Tóra hér við sultarsöng
sómaskáldin mögur
áður fyrr þau ortu svöng
afbragðsgóðar bögur.
Georg Best er fallinn frá.
Ferlega er konan há.
Kolsvört er kópavogsgjá.
Kveðskap góðan margir dá.
]
Kópavogs er kolsvört gjá.
Úr hugskoti limru fram laða
ljóðlínum saman ég raða
en alhæfa má
að öryrkji er sá
sem yrkir á örskotshraða.
Vel mér líkar vísnasport
vífin sjaldan trega
gaman er að geta ort
og gert það reglulega.
Ergilegt hvað allt er dýrt
í okkar góða landi.
Af gróðafíklum flestu stýrt
og ferlega er kaupið rýrt.
Vænir oftast vinna leik
vitringar þó tapi.
vitleysingur veður reyk
Bölverkur er besta sál
bögusmiður slyngur
en hann breittist ekkert mál
orðinn kynskiptingur.
Dregur reykinn drepur hann
daglega sig myrðir.
Skaðar lungu og líkamann
Gresjum klárir komu frá
kúrekar og skutu
á allt sem þeirra auga sá
engum reglum lutu.
Ef til er hún að totta smá
tryllt þá heyrist í mér stuna.
Flestir karlmenn dýrka og dá
er daman notar þverrifuna.
Graftarbóla er bölvun Guðs.
Bjór og vín er umbun puðs.
Mikið nú til stefnir stuðs.
Stolt er undanfari tuðs.
Nóvember er næstum búinn
Nornin virðist orðin gröð
en ég er millifótafúinn
fer að nálgast endastöð.
Eyrun á mér teljast tvö
tíu hef ég fingur
Jólin mikil Mammonshátíð.
Mundi held ég teljist þátíð.
Íraksdeil´er ekkert smástríð.
Óðum nálgast aðventan.
Ansi dökk er svert -prentan.
Erfitt reynist að mennt'ann.
Í mér lág er prósentan.
Máttarstólpinn á mér er
alltaf reiðubúinn
í ungar meyjar æstur fer
aldrei greyið barmar sér.
Dalar flokkur Dóri fer
í djöfull netta fýlu
ætt´að skríða alveg ber
undir pilsfald Grýlu.
Davíð Odds af stalli sté
stöðu fékk hann góða.
Heygarðs- sama -horn ert við
hungraður og þyrstur
einn þú drekkur áfengið
öðlast með því stundarfrið.