— GESTAPÓ —
     1, 2, 3 ... 1853, 1854, 1855  
Innlegg6 sexur - Offari - 23/5/23 00:08

Það var hennar tími sem kom.

InnleggFullyrðingamót. - Offari - 20/5/23 19:35

Lúnar eru lappirnar!
Legg ég upp á klappirnar.
Reyndar er hér rapp innar.

InnleggKveðist Á - Offari - 20/5/23 11:41

Snjallvæðing er fundið fé
fræðir mann og vekur.
Farsími með fjórir g
og fimman yfir tekur.

Innlegg6 sexur - Offari - 20/5/23 02:00

Minn tími mun koma.

Selur Bjarni banka af list.
Bætir þjóðarhaginn.
Passar uppápabba fyrst
með pening er hann laginn.

Þenar landsins þorna ei
á þjóðhátiðardaginn.

Varla er gott að vinna með
vænisjúku fólki.
Dágott er að drepa peð
með digrum byssuhólki.

Í Merardölum gýs nú gos
glóir þar nú hraunið..

Ég get um það talað trútt.
Tuða ég því mikið.
Forsetinn er fallegt krútt.
sem felur á sér spikið.

Verðlagið nú hækkar hratt
en hrapið verður stærra.

InnleggKveðist Á - Offari - 16/3/22 10:24

Hakakrossinn kominn aftur
Kænugarður berst þó enn.
Atomveldum eykst nú kraftur
endalokin koma senn.

Kreisti mína tannkremstúpu
tæmda fyrir löngu.
Borða núna bara súpu
svo búkur verð*að öngvu.

Aftur nú og enn á ný
enn ein bylgja hafin.

Innlegg6 sexur - Offari - 1/11/21 21:58

úbbs einn teningur datt á gólfið reyni aftur.

Innlegg6 sexur - Offari - 1/11/21 21:57

fær kast

Vladimar er krútt.

InnleggKveðist Á - Offari - 28/8/21 07:39

Nennan farin núna ég
nenni þó að sofa.
Nennan virðist vera treg
svo verkum engum lofa.

InnleggKveðist Á - Offari - 15/8/21 14:16

Fyrirvaralaust vort land
lokast hér nú getur.
Eldgos pestin eitthvað bland
eða bara vetur.

Innlegg6 sexur - Offari - 26/7/21 19:31

Er Herbjörn á lífi? Stekkur hæð sína

InnleggKveðist Á - Offari - 12/6/21 22:39

Skín hún ei þótt sumar sé
sól sem vermir landið.
í kyndingu nú fer allt fé
og frýs úr manni hlandið.

InnleggFullyrðingamót. - Offari - 24/2/21 20:41

Sumir fremja mannorðsmorð.
Margir þekkja haus og sporð.
Kvár og stálpur eru orð.

InnleggSpurningamót. - Offari - 31/1/21 19:37

Var fyrirgreiðslufé þér veitt?
Finnst þér orðið nógu heitt?
Er þér nokkuð lífið leitt?
Líst þér best á númer eitt?

     1, 2, 3 ... 1853, 1854, 1855  
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: