— GESTAPÓ —
     1, 2, 3 ... 124, 125, 126  
InnleggKveðist Á - Mjási - 15/10/23 17:51

Virt er flest að vettugi,
veldur renni drullu.
Stigi á sviðið stórhugi,
strokks við kendur bullu.

InnleggKveðist Á - Mjási - 24/3/20 23:38

Er á vappi vill fá klapp
visku knappi Lappi.
Létt frá stappi löngum slapp
lúmskur happa tappi.

InnleggSkammast í Bundnu. - Mjási - 27/2/17 21:55

Lappi er sem nornar nögl,
nöguð upp í kviku.
þyrfti sá í huppinn högl,
hundrað skot á viku.

Glæpasióðir gengur fattur Gunnlaugsson.
Ársins mesta eðal von.

Nú er lag að láta vaða lítinn stúf,
hryglur þó sinn hristi úf.

InnleggLjóðlínan - Mjási - 6/9/16 23:12

Stúlkan mín á hlutabréf í Högum
og hórbúllu við Laugaveg
miðdepill í sóðalegum sögum

InnleggHverjir eru inni? - Mjási - 8/4/16 20:55

þeir eru gengnir í ökklabandalagið.

InnleggSpurningamót. - Mjási - 8/4/16 20:51

Leikur þú stundum langspil á?
Langar þig að segja já?
Komstu aflandseyju frá?

InnleggKveðist Á - Mjási - 8/4/16 20:44

Afturgengin eftir fórn
með allt í drasli.
Sigurðar Inga sínist stjórn
í svaka basli.

InnleggVísa dagsins - Mjási - 8/4/16 20:23

Kvíabryggju kvöddu fól.
en koma aftur senn.
Þó sér eigi aflandsskjól,
ökklabandamenn.

InnleggSpurningamót. - Mjási - 9/1/16 01:29

Ætti að setja lok á lút?
Má leysa þennan rembihnút?
Er Brennivínið best af stút?

InnleggÖfugmælamót - Mjási - 5/1/16 23:03

Allt er líkt og orðið nýtt.
Engum hefur verið strítt.
Vökuleysi veldur spítt.
Vermdar nýtur kona grýtt.

InnleggFullyrðingamót. - Mjási - 5/1/16 22:28

Andvaka er engum holl.
Endur gista drullupoll.
Órólegir sækja í soll.
Svartagengið vekur hroll.

InnleggLjóðlínan - Mjási - 5/1/16 22:23

Stuðlaskortur stuðar mig
og staða röng á þeim.
Reyndar er slíkt reglusvig
rosa djöfull leim.

InnleggKveðist Á - Mjási - 26/11/15 23:04

Bjöllusauðir bulla oft
bölvað drullufrauð.
Þó amma sneri upp í loft
fór afi samt á Rauð.

InnleggKveðist Á - Mjási - 28/10/15 22:50

Hækan finnst mér heldur knöpp í helli úfs.
Heldur vil ég hendu stúfs.

InnleggStikluvika-keðja - Mjási - 1/10/15 22:21

Ljóts var andlit ljóma snautt,
löngum þakið kýlum.
Skýldi litlu skeggið rautt,
skreið úr trýni horið blautt.

InnleggSkammast í Bundnu. - Mjási - 27/5/15 18:25

Skárra væri'að skera haus
af skitu brenda Hlebba.
Leggjann svo við loðinn daus,
lykt svo fylli nebba.

     1, 2, 3 ... 124, 125, 126  
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: