Lappi er sem nornar nögl,
nöguð upp í kviku.
þyrfti sá í huppinn högl,
hundrað skot á viku.
Glæpasióðir gengur fattur Gunnlaugsson.
Ársins mesta eðal von.
Nú er lag að láta vaða lítinn stúf,
hryglur þó sinn hristi úf.
þeir eru gengnir í ökklabandalagið.
Leikur þú stundum langspil á?
Langar þig að segja já?
Komstu aflandseyju frá?
Kvíabryggju kvöddu fól.
en koma aftur senn.
Þó sér eigi aflandsskjól,
ökklabandamenn.
Ætti að setja lok á lút?
Má leysa þennan rembihnút?
Er Brennivínið best af stút?
Allt er líkt og orðið nýtt.
Engum hefur verið strítt.
Vökuleysi veldur spítt.
Vermdar nýtur kona grýtt.
Andvaka er engum holl.
Endur gista drullupoll.
Órólegir sækja í soll.
Svartagengið vekur hroll.
Ljóts var andlit ljóma snautt,
löngum þakið kýlum.
Skýldi litlu skeggið rautt,
skreið úr trýni horið blautt.
Skárra væri'að skera haus
af skitu brenda Hlebba.
Leggjann svo við loðinn daus,
lykt svo fylli nebba.