Nabbi er nafn á gömlum bæ
Norðaustur af Gafli
Þar oft spruttu settleg fræ
sáð í fyrnd af afli
Hissa er ég hrikalega
að Hannes okkar hávara
skildi ekki stela mega
steini öllu léttara
Draumstöðuglæta góð
gerðu það nú vertu
hjá oss þegar hjólin óð
hjakka í vitskertu
Sjnáðan drenginn dreymdi draum
Dreymdi hann sig fríðann gaur
Skækja til hans skaust á laun
er skamm, hann vaknaði sem staur
Heilaskattur hækkar eigi
heimdellingum hjá
Það er það sem Davíð segi
þeim að; ekki sjá!
heldu er ekki heppilegt
að hefja vísu með
Held að það sé hræðilegt
hér er vísnapeð
Bestur er hann Bush
barnavinur mestur
Í skólastofu, hush!
situr enn við lestur
Skriðjöklar
Þynnka er ekki annað en réttlæti eftir hágleði gærkvöldsins.
Haddaway