Ég mig rak í rogastanz
rindils aum er kvölin
lævís-lega'í kvennafans
lenti nú er völin
Hvað er nú í heimi hér
hrikalegt að gerast.
Aldrei nokkurn fæ ég frið
fyrir bolta sparki
en nýársnótt ey gefur grið
með geðbiluðu snarki.
Nú er flensan flogin burt
sem farfuglinn að hausti
Sínum fínum sementspokum
sitja ítalir á
bíða þægir í austfjarða þokum
þeir uns kínverja fá.
Böll minn nú með betri tíð
með blómið væna í haga
Niðrá gólfið nú ég skríð
Nú er komin baga
Ég Línu Langsokk hitti
á leiðini í messu
Tók hún um mitt mitti
og marði mig í klessu
Þjáist þjóð á messu-
Þorláks- Blessuð skatan
lyktar líkt og klessu-
líþrár Litli-Satan
(klessulíkþrár er orð sem er kannski ekki til?)
of seinn
Viltu tefla skyndiskák
skora ég á þig.
En mín geta er hálfkák
ekki benda'á mig
Skora þú nú einhvern annan
á að tefla skák.
Viltu kaffi, karlinn minn
og konfektmola líka?
En kannski sníkja ert kominn
koníakið ríka.
(of seinn)
Þorláksmessuskatan þráa
þykir undraverð
Kanna stendur upp á stól
stigmagnandi koma jól
Jólasveinar jóðla'á hól
Je minn ég rek upp stressgól
ananas
Gæti ég fengið kaffi og kleinu. Gæti ég svo ekki fengið að taka einhver í kleinu hér.
Hléwagestir horfinn er
hégómlegum sínum hent
Vonandi hann vellir hér
vísum inn og snilldar pent
Mín er ekki minnst á hót.
Meira að segja núna,
er í kulda og þýðumót
ylja alla lúna
Tobbi þolir ekki Górillur í Svaðiför til Surtsey!