Hildiríður Henriksen er hundrað ára
og seytján betur - samt af vana
sveinar allir gilja hana.
Kaunas í landinu Litháen
er lítil en fögur borg
þar eru strætin pússuð og pen
og puntað hvert einasta torg.
Úti er kalt og kólnar allt
kuldinn alltaf bítur
vita skaltu að víst er svalt
og vont er salt á pítur.
Fáðu þér sæti, sæti ágæti
og sýndu af þér kæti.
Syngjandi gæti ég gengið um stræti
með gleði og læti.
Knúsum okkar kæru vini
knúsum líka hina
Knúsum dætur, knúsum syni,
knúsum landsstjórnina.
Æ æ ég var of sein.
Áðan mættust stálin stinn
Stína gamla og karlanginn.
Herfan gamla og höfðinginn.
Hann varð þegar ástfanginn.
Milli jóla og nýárs nær
nautnalíf að sjatna.
Ég fékk á jólum fína bók,
fræðirit um sveppi.
Sveppagróður gleði jók
í Gaulverjabæjarhreppi.
Milli jóla og nýárs nær
nautnalíf að sjatna.
Lifi þeir sem lífi sínu lifa í friði
en forðast bæði raup og reiði
og ríg á sínu æviskeiði.
Blanda er í Blöndudal
byggðaprýðin skíra
Um seima grund og sælan hal
semur lofgjörð dýra.
Já.
Hefur þú fengið líkamlegan innblástur?
[url=http://www.perrier.com/EN/index2.asp]Perrier er prýðilegur partídrykkur
Megi hverfa oní okkur
af því seytján þúsund bokkur.
Fæðu laka fugla tel.
Fitu í hár skal kalla gel.
Í Mexíkó býr Manúel.
Það er ekki heiglum hent
að horfa fram af gnýpu.
Ýmsir hafa á sig brennt
að ögra slíkri týpu.
Hingað komin hundslöpp er
heiðurskonan Drífa.
Málflutningsmaður
mega glaður
glæstur graður
geðtruflaður.
Samanber: http://www.pressan.is/Frettir/LesaFrett/hvad-kveikir-neistann-nakin-stulka-med-bjor-sem-spyr-hvad-madur-vilji-gera-i-leikhlei
Nefið, sem gagnlegust græja er vor,
- því gaman oss þykir að anda -
er stundum svo troðið af tóbaki og hor
að talsverðan skapar það vanda.
Þorgerður er þokkadísa nettust
þokkalega sæt og meyja léttust
yfir barminn mærin sýnist mettust
en magalínan, beinust er og sléttust.
Nýaldar- hún kann að njóta -bóka
náttúrulækninga, kristalla o ...