Við lesum saman Kóraninn á kvöldin
og kveðum rímu eftir Bólu Hjálmar.
Fjöldinn allur fer á túr í Fellabæ.
Sýpur görótt sí og æ.
Val er fáum vandamál í verstu nauð.
Svöngum líkar lifibrauð.
Prófa aftur.
Grunar Stjáni Gunnu Stöng um græskubras.
Mangar hún við Matthías.
.... úbbs .... þegar þetta datt inn þá sá ég að ég hafði verið á blaðsíðu 14 en ekki þeirri síðustu. Afsakið.
Sovétmenn á sínum tíma supu hel.
Stalínistar vilja vel.
Ljóð við yrkjum lon og don,
og leggjum hér í púkkið.
Íslenskunnar eina von,
er að bæta lúkkið.
Flón er varla kona Kargs.
Kannski dugar hún til þvargs.
Brúka kerlur má til margs
(þar sem þetta á að vera öfugmæli væri trúlega betra Fæstum þykir heitt í Hel ;-) )
Flestum þykir hlýtt í Hel.
Hampar ÍA Bjarni Fel.
Bananar oft borða fólk
byssu aldrei sá ég hólk
Súra oft ég svelgi mjólk.
Segja allir þjófabólk.
Abbaþáttur þreytir mann.
Karlar þiggja kvennafrí.
Haustið spáir hörðum vetri, hálku og snjó.
Þá er gott á Gestapó.
Samúræ á sverðin beitt
z gerði ekki neitt
Afhending er allra best í orða stað.
Stúfhendan er styttri en það.
Ljótt er höfuð, lítið vit og lúin sál.
Ævigatan er mér hál.
Útrásin var úber snjöll.
Allir geta klifið fjöll.
Blindir hlaupa um víðan völl.
Vekur dauðinn hlátrasköll.
Vösk nú renna vötnin stríð.
Víst er ennþá hlíðin fríð.
Eftir Kötlu ennþá bíð.