Fremur slakir jazztónleikar
Nú í kvöld hringdi ég 1414 sem er þjónustusími Vodafone samkrullsins. Eftir að hafa valið "nethjálp" úr þeim möguleikum sem mér var boðið hófst lyftutónlistin sem átti að létta mér stundir meðan ég beið eftir aðstoðinni. Á dagskrá var jazz sem mér þótti betri en þriggja tóna lögin sem maður þarf stundum að hlusta á. Það eina neikvæða við þessa áhlustun var innskot sem kom á stuttum fresti þar sem mér var tjáð að allt væri upptekið og að mér yrði svarað eins fljótt og auðið var. Reyndar var biðin orðin heldur löng þegar hjálpin svaraði en sú hjálp var til fyrirmyndar.
Innhringing mín í 1414 var því ágæt en telst þó ekki til bestu tónleika sem ég hef upplifað.
Ég bendi á að ef hjálpin sem þú vildir fá snérist ekki um harðbúnað þann sem við tölvur tengjast heldur frekar almennar spurningar um nettengingar þá er best að velja þann möguleika að tala við þjónustufulltrúa. Biðtíminn hjá þjónustufulltrúa er ekki nema brot af því sem nethjálpin krefast af manni í bið. Þekki ég þetta af eigin reynslu.