Opinber hnjebeigja.
Þá stund er jeg augum fyrst bar þig
þrumaðir þú yfir mjer
jeg mýktist og meyg næstum á mig
myglað brauð, glænýtt smjer.
Ó Tígra...
Öldungis lendar og læri
unaðsleg atlot þín
mittið svo passlegt og possó
pínu jeg undrast það
að hjartað hamast og lemur
er umhuga verð um þig
hver er það sem um allt semur
má ég tala við manninn þinn
aðeins um stund
æ mikil mæða.
eingin er sem þú
svona fögur og rjóma blíð
stríð
úti er vor og karga hríð
grösin svo fölnuð og fá
vá
jeg fer úr að ofan og ber mig á brjóst
og hnykla vöðvana og lem á sixpakkið
og segi við sál mína
þegiðu.
hundi