Leggst upp í sófa með Blút og tóbaksvafning.
Jeg og Hunda mín keyptum okkur stóra og fína íbúð í dag og þurfum ekki lengur að henda Böggunum okkar í aðra. Getum flutt í hundakofann í síðasta lagi fyrsta Ágúst. Kominn tími til að pissa á staura og dekk til að merkja sjer umráðasvæði.
Skál elskurnar mínar. Hamingjuóskir vinsamlega afþakkaðar...
" Hamingjuóskir vinsamlega afþakkaðar "
Farðu þá í fjandanns rass félagi elskulegur
Nei bara að grínast til hamingju með (hunda) kofann
Ég hefði óskað þér til hamingju með nýbýlið en fyrst það er bannað þá segi ég bara til lukku!
Hefði óskað þér til hamingju ef þú hefðir flutt hingað ræksnið þitt svo farðu bara í rass og rófu og ríddu grárri tófu skoffínið þitt.
Ég myndi sko alveg flytja til ... já þið vitið... ef ég sem og eiginkona mín fengjum atvinnu við okkar fög!
Kellinga hrukkan sem þykist eiga kofann hætti við. Kanski maður leyti næst í Baggalútíu.