Allt er fast í horfinu endalaust.
Nú í dag erum við að hamast við að flytja skrifstofuna í smærra húsnæði, til að spara húsaleigu meðan reksturinn er að komast aftur á skrið.
Við konan erum að fara að skoða íbúðir um helgina, til kaups væntanlega.
Ef jeg er samur við mig, þá verður keypt strax í næstu viku og flutt inn strax!
Á milli þess sem jeg stend í að pakka niður og upp úr kössum og pokum, stend jeg með blóðuga fingur og snirti fisk, pakka og vikta.
Svo er jeg enn að bíða eftir því hvað sumarið ber í skauti sjer. Förum við hjúin austur á Reyðarfjörð í 2 ár? Þarf jeg kanski bara að aka túrhestum í sumar? Get jeg þá farið að vinna í fisknum næsta vetur? Kemst jeg til Grænlands að hitta son minn? Selst Benzinn? Get jeg sett pikköppinn á númer áður en jeg flyt?
Á jeg að hætta þessu væli yfir eingu?
HVAR ER AKTIONIÐ?...
Komdu að túristast í sumar hundingi, það er spáð verulega skemmtilegum túristum í allt sumar.
Væri ekki ráð að stroka út yfsilonið í fyrirsögninni og setja i í staðinn?
Þá fyrst færi eitthvað að gerast af viti...
Hundinginn er með sérstakt leyfi til slíkra villna, vegna þess að hann ólst upp að miklu leyti á Grænlandi.
Það fer allt að gerast. Það er bara að gerjast. Síðan glerjast það og að lokum verður allt í sómanum.
Mér heyrist nú bara nóg vera að gera hjá þér! Aðalspennan hjá mér í dag er hvort ég eigi að fá mér espresso eða cappucino - engar hallir til að kaupa eða eðalvagnar til að selja.
Svo hættu að væla, líttu brattur fram á veg og láttu okkur svo vita hvernig allt æxlast.
Gangi þér vel!!
Það er ekki hlaupið að því þegar valið stendur á milli kappútsjínó og espressó. Það er lykilatriði að velja rétt, ellegar gætu afleiðingarnar verið katastrófískar... það finnst mér amk.
Hundingi... skál fyrir þér.
Takk takk. Búinn að flytja skrifstofuna og er farinn að skoða íbúðir. Þetta kemur smám saman.
Kanski jeg fái mjer Expressó.