Sá sóma piltur og originali!
Þér fáið fimm stjörnur frá mér, fyrir að tóra en hér á Baggalút þrátt fyrir ómannlegar árásir úr sumum hornum. Þér eruð sannur originali og hef ég aldrey séð hjá þér annað en heiðarleika og fagurt hjartalag "litli bróðir"
Bauv lengi lifi!
Og kæra ritstjórn. Fyrirgefið mér hvað þetta félagsrit er stutt hjá mér, fanst ég þurfa að koma þessu í áberandi sæti á Gestapó. Og eingar baunir takk, ég fæ bölvaða vindverki af þeim.
Já, veistu Bauv er svo góð sál að maður getur ekki annað en tekið þetta littla krútt og faðmað hann alveg í tætlur. Algert rassgat!
Ég er farinn að hallast að því að bauv sé raunar ágætis apaköttur, að minnsta kosti er hann þolinmóður, ekki myndu allir nenna þessu vesini.
Ef Bauf kemur heill út úr þessu þá er hann andskoti góður. Fyrst dynur á honum skothríðin úr öllum áttum, síðan er hann kaffærður í mærðarvellu.
Nafni. Ertu samt hættur að reyna á þolrifin í mér? Ég er bara öldungis gráti nær.
Ég gef Bauv fimm stjörnur fyrir það eitt að vera Bítlaaðdáandi. Þar er hann í góðum félagsskap með mér og Haraldi Austmann.