Ég held að nú sé fokið í flest skjól. Ég hef ekki ritað fjelaxrit í háa herrans tíð. Þetta er náttúrulega ekki nokkur hemja.
Ég er alveg gapandi bit á því hvernig samfélagsmiðlar hafa hreinsað fólk í burtu af þessum miðli. Ég er þar með talinn. Þetta hófst með því að hugi.is reyndi allt hvað af tók að narra samfélag okkar þangað með öllum tiltækum ráðum. En það tókst illa. Þá kom voðavefurinn barnaland sem dró okkur í þessa líka dásamlegu umræðuhefð sem skekið hefur nánast allt samfélagið, hvort sem er á almenningssalernum eða jógatímum. Svo gerðist það, Fnæsbók kom... svo Minnstagramm... og Smjattpatt... eða hvað þetta heitir nú allt saman. Allt gengur út á læki, kvittanir og deilur. Er ekki allt í lagi með okkur? Hvað varð um þá hámenningarlegu umræðu sem við viðhöfðum hér? Hvað varð um þá virðingu sem við höfðum áskapað okkur? Kannski ég ætti að eyða meiri tíma við lestur hér en að hoppa á milli þessara smáborgarasamfélagsmiðla... Kannski.
Ég held að læk og svarleysið við þessum pælingum þínum svari öllum þínum spurningum.
Hvernig komið er fyrir þessum annars ágæta miðli er sorglegt, eina virknin er mafíósaleikir og einstaka síðastur að svara vitleysa.
Meira að segja teningarnir eru útdauðir.
[Dæsir mæðulega og allt það og fer að leita að teningaleik]
Þetta var nú bara skrifað í dag, hinn tuttugasta og fjórða dag janúarmánaðar þess herrans árs tvöþúsund og átján, þó að það þykist vera skrifa hinn annan dag desembermánaðar síðast liðins árs.
Sum sagt, ekki er hægt að tala um svarleysi við glænýjum vangaveltum.
En það ætti svo sem ekki að svara þessu neitt frekar fyrr en höfundur hefur velt hér talsvert fleiri vöngum, svo hægt sé að gera ráð fyrir að hann sjái dásemdina í svörunum.
Ívar, fyrst þú getur falsað dagsetningu, geturðu þá ekki líka gefið þessum apasmettum feis?
Það er allt á fallanda fæti í þessari útópísku undraveröld sem Baggalútía eitt sinn var. Allir þræðir eru orðnir laumupúkaþræðir en forsetinn er hvergi sjáanlegur.
Eg þurfti 1/2 flösku af spænskum rauðvínum til að muna eftir að gæjast hingað inn.
Sumsagt, þú sullaðir saman öllum afgöngunum úr síðasta partýi á Kaffi Blút, til að ná í hálfa flösku?
Forsetinn hvergi sjáanlegur? Meinið þjer að vjer höfum náð fullkomnun í listinni að laumupúkast? [Ljómar upp]
Billi, Regína og Forsetinn eru nú þau sem mest sjást hérna orðið og eiga mikinn heiður skilinn, Hvæsi er hins vegar horfinn aftur. gaman væri að fleiri gamlir póar myndu birtast hérna og staldra við í nokkra stund.