Stórt er spurt.
Hver er ég? Jú, Ívar Sívertsen - sjá upplýsingar hér hægra megin.
Hvar er ég? Hér auðvitað sauðnautið þitt! Hvar ætti ég annars staðar að vera? Þessir meintu raunheimar eru helvítis prump og ég harðneita að taka þátt í þeim!
Hvernig er ég? - sjá mynd!
Af hverju er ég? Sko, ef ekki væri fyrir mig þá værir þú ekki að lesa þetta!
OG NEI, ÉG MUN EKKI EYÐA ÞESSU ÓRITI TAFARLAUST! OG NEI ÉG MUN EKKI EYÐA ÞESSU ÓRITI ALMENNT!
Vér mælum með því, að þér lagið eilítið titilinn á ARG-riti yðar. Það skemmir uppsetningu yðar heimasvæðis.
Hvað varðar „hvernig“-spurninguna, þá munum vér eftir yður öðruvísi útlítandi. Því tökum vér eigi nema hæfilega mikið mark á orðum yðar þar.
Ég hélt þetta væri umfjöllun um aukna þjónustu strætó og hinnar nýmóðinz Mjódd-Hafnarfjarðar línu sem mun stórbæta líf og líðan pöpulsins. Sem og fleiri ferðir og lengri þjónustutími. Bara allt morandi í yfirvinnu og monní hjá því Ívar. Eða? Ertu bara hættur á strætónum?
Ef ég kynni nú að gera einhvers konar sviðslýsingarlíki á þessa tölvu sem ég er á núna - þá sitngi ég af!