— GESTAPÓ —
Í uppáhaldi:
Félagsrit:
Ívar Sívertsen
Friðargæsluliði.
Heiðursgestur og  skáldjöfur.
Pistlingur - 6/12/10
Almennur félagsfundur

Í kvöld 9. júní kl. 20.00 verður haldinn almennur félagsfundur.

Í Tjarnarbíói í Reykjavík verður haldinn almennur félagsfundur í félagi almennra félaga. Aðganseyrir er 1.500 krónur og sér Varsjárbandalagið um fundarstjórn. Skýrslu seinni hluta fundarins má kaupa að fundi loknum á eingöngu 2.000 krónur. Þegar skýrslan fer í almenna sölu kostar hún mikið meira. Mætið og sýnið samstöðu.

Fjölmennum

Nefndin

(hér er átt við útgáfutónleika hljómsveitarinnar Varsjárbandalagsins)

   (11 af 287)  
6/12/10 09:00

Regína

Vill einhver kaupa af mér miða á Eagles í Laugardagshöllinni svo ég komist á þennan mikilvæga fund? Miðinn gengur að stæði fatlaðra á B svæði.

6/12/10 09:00

Grágrímur

Ég væri til í að kaupa hann Regína en þá þyrfti ég að hlusta á Eagles og það bara held ég að ég myndi ekki þola.
Mun frekar mæta á fundinn.

6/12/10 09:01

Regína

Góða skemmtun Grágrímur.

6/12/10 09:01

Hvæsi

Ætlaru að keyra eða hlaupa á eftir strætó á fundinn Grágrímur ?
*Glottir einsog fáviti yfir ákvörðun sinni að nauðga þessu þartil að verður alls ekki fyndið lengur*

En ég myndi líklega mæta ef ég byggi ekki á landsbyggðinni og á að mæta í vinnu um 4 í fyrramálið.

Segi bara brjóttu fót Ívar og hafðu gaman af.

6/12/10 09:01

hlewagastiR

Af hverju ætti ég að mæta? Ekki komuð þið á fundinn hjá mér í félagi fólks með gleymskuheilkenni og minnistruflanaraskanir. Þó sendi ég öllum fundarboð, minnir mig.

6/12/10 09:01

Miniar

Ég er enn eitt landsbyggðarflónið og er þar að auki bíllaus og blankur. Kæmist ekki þót ég gerði mitt besta, þannig að ég held ég sofi bara í staðinn.

6/12/10 09:01

Huxi

Ég er að fara að hlusta á Eagles. Það eru svo litlar líkur á því að sjá þá aftur. En ég vona svo sannarlega að Varsjárbandalagið muni troða upp oft og lengi, um alla fyrirsjáanlega framtíð.

6/12/10 09:01

Upprifinn

Reikna með að sjá og heyra í ykkur fyrir norðan eftir mánuð.

6/12/10 09:02

Grágrímur

Sérdeilis frábærir tónleikar. Vorkenni þeim er fóru frekar á eldgamla fiðurféð.

6/12/10 10:00

Anna Panna

Ég hefði sko mætt ef landfræðilegar aðstæður hefðu verið hagstæðari. Gott að fólk skemmti sér!

6/12/10 10:00

Hvæsi

Anna Panna alltaf með sömu leim afsakanirnar. (Vá er svo nývaknaður að það tók mig 20 sek að stafa þetta orð.. afsakanirnar)

6/12/10 10:01

Vladimir Fuckov

Fundir eru oft hundleiðinlegir en það tilkynnist hjer með opinberlega að þessi var stórskemmtilegur. Skýrsla seinni hluta fundarins verður síðan rannsökuð nákvæmlega um helgina.

6/12/10 10:02

Grýta

Þið voruð flottir í Kastljósi.

6/12/10 13:01

Ívar Sívertsen

þökk!

6/12/10 16:01

Anna Panna

Hey af hverju eru það afsakanir þegar ég ber fyrir mig fjarlægðum en ekki allir hinir landfræðilegu vitleysingarnir? Hrmpf... [Hneykslast svakalega og strunsar út af sviðinu]

7/12/10 01:01

Ívar Sívertsen

[Strunsar á eftir Önnu Pönnu með sviðið og eltir hana uppi]

8/12/10 03:01

bauv

Þetta var flottur fundur

Ívar Sívertsen:
  • Fæðing hér: 11/8/03 12:21
  • Síðast á ferli: 22/6/23 12:25
  • Innlegg: 12356
Eðli:
Ákaflega fagur ungur maður með mikinn metnað og kann sig á allan hátt. (hann lærði það á kvöldnámskeiði hjá Bréfaskóla SÍS)
Fræðasvið:
Ég veit allt, get allt og kann allt en fer rosalega leynt með það og kann að fela það vel.
Æviágrip:
[i]Fæddur að handraðanesi á sóðbrókarströnd í Ristilfirði. Lést skömmu síðar. Reis upp frá dauðum eftir korter og bað um brauð. Eftir það var ekki aftur snúið. Hann hefur síðan verið ánetjaður Baggalúti og virðist ekkert vera að skána.Hann fékk sér fæðingarblett á kinnina skömmu áður en hann lét taka hann af sér. Hann hló skömmu eftir það. Ívar hefur nú hafið búskap á Eyðibýli á Auðkúluheiði. Hann hefur aldrei verið við kvenmann kenndur en hann er all oft kenndur. Sívertsenættin hefur lýst hann útlægan og krafist þess að hann afsali sér ættarnafninu og taki upp nafnið Nestrevís en hann hefur margsinnis hafnað því. Ef þú ert að lesa þetta ennþá þá ert þú líklega jafn skemmdur og Ívar... ef ekki skemmdari barasta. Ertu enn að lesa? Nei nú læt ég leggja þig inn á geðdeild! Það er ekki heilbrigt að lesa svona langt! Viltu hætta þessu! HÆTTU SEGI ÉG!!! Ef þú ert enn að lesa og finnur ekki fyrri vott af þreytu þá skal því bætt við að þegar Gestapó var opnað í árdaga þá gerðist Ívar fastagestur hið snarasta. Hann hefur æ síðan verið einn virkasti gestapóinn og ritað mikið. Hins vegar er ljóst að hann kemur til með að auka viðveru sína á Gestapó á komandi árum því nú hefur hann komið sér í innivinnu við tölvu. Ertu enn að lesa þetta? ÉG held svei mér að þú ættir í alvöru að leita þér hjálpar. Ég er löngu hættur að lesa þetta... ég veit ekki einu sinni hvað stendur eftir línu þrjú. En hvað um það. Síðan hafa mörg vötn runnið til sjávar og eiginlega svo mikið að það er ekkert salt eftir í sjónum, það lagði á flótta upp í ár og stöðuvötn þannig að nú er sjórinn pakkfullur af ferskvatnsfiskum og ferskvatnshvölum. En það bar til um þessar mundir, að boð kom frá Megasi keisara, að skrásetja skyldi alla drykkina. Þetta var fyrsta skrásetningin og var gjörð þá er Gylfi Ægisson var blandstjóri í Stúdjó Sýrlandi. Fóru þá allir til að láta stjaksetja sig, hver til sinnar borgar. Þá fór og Rúnar Þór úr Litlu Hraunum frá Hótel Borg upp í Morgunblaðshús, til borgar Davíðs, sem heitir Hádegismóar, en hann var af ætt og kyni Davíðs,að láta skrásetja sig ásamt Maríu hjákonu sinni, sem var þung. En meðan þau voru þar, kom sá tími, er hún skyldi verða léttari. Ældi hún þá bjór sinn frumdrukkinn, sagði hann vondan og lagði hann í fötu, af því að eigi var romm handa þeim í gistihúsi. En í sömu byggð voru barþjónar úti í haga og gættu um nóttina drykkja sinna.Og vörður laganna stóð hjá þeim, og dýrð Áfengis ljómaði kringum þá. Þeir urðu mjög fullir, en löggimann sagði við þá: Verið óhræddir, því sjá, ég boða yður mikinn fögnuð, sem veitast mun öllum lýðnum: Yður er í dag afréttari færður, sem er Hristur og hrærðu, í Mogga Davíðs.Og hafið þetta til marks: Þér munuð finna gubb vont, lagt í fötu. Og í sömu svipan var með löggumanninum fjöldi himneskra hljómsveita, sem lofuðu stuð og sögðu: Dýrð sé stuði í Hádegismóum, og fiður á Davíð og mönnum sem hann hefur velþóknun á. Þannig hljóðar hið heilaga stuðspjall. Og þegiðu svo!