Afsakið
Ágætu vinir og félagar.
Hljómsveitin mín, Varsjárbandalagið, leikur á Café Rósenberg föstudags- og laugardagskvöld.
Aðalöndin lofar að vera í aðgangssölu á laugardagskvöldið.
Aðgangseyrir er 1.500 krónur.
Gyðingatónlist og austur-Evrópugeggjun alls ráðandi.
Það er ekki nokkur leið að sitja kyrr!
Þú bara verður að mæta!
Ég kem ekki fyrr en þið skellið ykkur í tónleikaferð um nýlendurnar! (Nema kannski ef það verður spilerí um páskana..)
Þetta gengur ekki. Ég er að safna fyrir Eagles tónleikunum...
Eða bensíni til að komast á þá réttara sagt.
Góður kostur um helgina. Klukkan hvað eruð þið að spila?
Og bendi þá á það í leiðinni, ekki seinna vænna, að raunheimska hliðarsjálf frosksins verður með trúbadortónleika á þessum sama stað þann áttunda apríl.
Eru þeir ekki svolítið afskekktir þessir raunheimar þínir?
Eða allavega þessi afkimi þeirra sem tónleikarnir verða í.
Ég skal labba framhjá á leið minni í vinnuna, en ég tími ekki 1500 kalli í 3 minútur.
Golsi, eyddu þessum óbelg! Einu sinni dissaði ég spammið hans Ívars og það er nú bara engum blöðum um það að fletta að þessi elska brotnaði niður og grét eins og barn. Ég var miður mín í marga daga og hann í hálft ár. Þetta má aldrei gerast aftur. Farðu frekar á þessa dansæfingu og stappaðu stálinu í garpinn. Við síonistarnir verðum að standa saman.
Kannski mæti ég bara laugardagskvöldið... Ætli ég þekki einhvern eða einhver kannist við mig.
Jæja, það verður bara að koma í ljós.
Sérstakur leynigestur verður LÍNBERGUR LEIÐÓLFSSON SEM AÐGANGSEYRISRUKKARI!
Vér þökkum tónleikinn, og fríkeypis aðganginn.
[Hlær lágt og illmennislega, eins og Blástakkur hefði gert.]