— GESTAPÓ —
Í uppáhaldi:
Félagsrit:
Ívar Sívertsen
Friðargæsluliði.
Heiðursgestur og  skáldjöfur.
Dagbók - 1/12/10
Afsakið

Afsakið fjarveru mína en hún verður lengri.

ÉG er að gerbreyta nokkrum hlutum.
Ég hef sótt um lögskilnað við bakkus og er það mál í ferli.
Við Hexia de Trix erum hins vegar hamingjusamlega gift að vanda og eigum tvo krakkaorma sem brátt verða skilgreindir sem óalandi unglingar.
Ég hef brennt nokkrar brýr að baki mér þó svo vegakerfið sé samt í talsvert góðu lagi.
Ég er hins vegar og verð alltaf sama helvítis fíflið og ruglustampurinn.

Sættið ykkur við það!

   (13 af 287)  
1/12/10 03:02

Offari

Eigum við að fá okkur í glas í kvöld?

1/12/10 03:02

Regína

Gott hjá þér! Það þarf nú að prófa þetta líka!

1/12/10 03:02

hlewagastiR

Fyrir alla muni farðu samt ekki að performera níunda sporið á okkur. Það er svoooooo 1935.

1/12/10 04:01

Kiddi Finni

Gangi þér vel, félagi Ívar.

1/12/10 04:01

Ívar Sívertsen

Ég performera ekki spor opinberlega. Ég er ekki einu sinni byrjaður að skoða þau hvað þá annað. Ég bara hætti að drekka.

1/12/10 04:01

hlewagastiR

Jasso! Djöfull ertu alltaf flottur. Ég tek nú handklæðið ofan í smá stund fyrir svona mönnum.

1/12/10 04:01

Hvæsi

Ertu semsagt að segja að þú þurfir að vera fullur til að geta verið hérna ? Ég fékk mér aðeins einusinni í glas árið 2010 en sé ekki ástæðu til að flagga því sérstaklega.

1/12/10 04:01

Ívar Sívertsen

Nei, alls ekki. Fjörið bara kláraðist einhvern tímann hér og ég kíki við til að kanna hvort eitthvað sé enn að gerast... sem sjaldnast er.

1/12/10 04:01

Dula

Til hammó með það. þurfum við þá að þola þig útúrreyktan í staðinn ?

1/12/10 04:01

Huxi

Allt er þetta nú gott og blessað, nema hvað ég vil fá Hexiu aftur. Núna STRAX!!!

1/12/10 04:01

Garbo

Sammála öllum (nema Hvæsa)sem tjáð hafa sig hér að ofan. Gott hjá þér.

1/12/10 04:01

Sannleikurinn

Ei mun jeg mjer neitt fengið hafa í þá veru - en hins vegar var lambalærið sem jeg og pabbi steiktum eitt albesta lambalæri sem talið er að hafi verið steikt heima fyrr og síðar..........

1/12/10 04:01

Heimskautafroskur

Þakka viðkynninguna. Og gott að vita að Bakkkus er á lausu, mér líður betur með sambandið á eftir.

1/12/10 05:01

Lopi

Afsakið auglýsingar.

2/12/10 04:01

Sannleikurinn

jeg er með Eurovisionsongconcertphobia og er stoltur af því!!
Jibbíjei!!!!

Ívar Sívertsen:
  • Fæðing hér: 11/8/03 12:21
  • Síðast á ferli: 22/6/23 12:25
  • Innlegg: 12356
Eðli:
Ákaflega fagur ungur maður með mikinn metnað og kann sig á allan hátt. (hann lærði það á kvöldnámskeiði hjá Bréfaskóla SÍS)
Fræðasvið:
Ég veit allt, get allt og kann allt en fer rosalega leynt með það og kann að fela það vel.
Æviágrip:
[i]Fæddur að handraðanesi á sóðbrókarströnd í Ristilfirði. Lést skömmu síðar. Reis upp frá dauðum eftir korter og bað um brauð. Eftir það var ekki aftur snúið. Hann hefur síðan verið ánetjaður Baggalúti og virðist ekkert vera að skána.Hann fékk sér fæðingarblett á kinnina skömmu áður en hann lét taka hann af sér. Hann hló skömmu eftir það. Ívar hefur nú hafið búskap á Eyðibýli á Auðkúluheiði. Hann hefur aldrei verið við kvenmann kenndur en hann er all oft kenndur. Sívertsenættin hefur lýst hann útlægan og krafist þess að hann afsali sér ættarnafninu og taki upp nafnið Nestrevís en hann hefur margsinnis hafnað því. Ef þú ert að lesa þetta ennþá þá ert þú líklega jafn skemmdur og Ívar... ef ekki skemmdari barasta. Ertu enn að lesa? Nei nú læt ég leggja þig inn á geðdeild! Það er ekki heilbrigt að lesa svona langt! Viltu hætta þessu! HÆTTU SEGI ÉG!!! Ef þú ert enn að lesa og finnur ekki fyrri vott af þreytu þá skal því bætt við að þegar Gestapó var opnað í árdaga þá gerðist Ívar fastagestur hið snarasta. Hann hefur æ síðan verið einn virkasti gestapóinn og ritað mikið. Hins vegar er ljóst að hann kemur til með að auka viðveru sína á Gestapó á komandi árum því nú hefur hann komið sér í innivinnu við tölvu. Ertu enn að lesa þetta? ÉG held svei mér að þú ættir í alvöru að leita þér hjálpar. Ég er löngu hættur að lesa þetta... ég veit ekki einu sinni hvað stendur eftir línu þrjú. En hvað um það. Síðan hafa mörg vötn runnið til sjávar og eiginlega svo mikið að það er ekkert salt eftir í sjónum, það lagði á flótta upp í ár og stöðuvötn þannig að nú er sjórinn pakkfullur af ferskvatnsfiskum og ferskvatnshvölum. En það bar til um þessar mundir, að boð kom frá Megasi keisara, að skrásetja skyldi alla drykkina. Þetta var fyrsta skrásetningin og var gjörð þá er Gylfi Ægisson var blandstjóri í Stúdjó Sýrlandi. Fóru þá allir til að láta stjaksetja sig, hver til sinnar borgar. Þá fór og Rúnar Þór úr Litlu Hraunum frá Hótel Borg upp í Morgunblaðshús, til borgar Davíðs, sem heitir Hádegismóar, en hann var af ætt og kyni Davíðs,að láta skrásetja sig ásamt Maríu hjákonu sinni, sem var þung. En meðan þau voru þar, kom sá tími, er hún skyldi verða léttari. Ældi hún þá bjór sinn frumdrukkinn, sagði hann vondan og lagði hann í fötu, af því að eigi var romm handa þeim í gistihúsi. En í sömu byggð voru barþjónar úti í haga og gættu um nóttina drykkja sinna.Og vörður laganna stóð hjá þeim, og dýrð Áfengis ljómaði kringum þá. Þeir urðu mjög fullir, en löggimann sagði við þá: Verið óhræddir, því sjá, ég boða yður mikinn fögnuð, sem veitast mun öllum lýðnum: Yður er í dag afréttari færður, sem er Hristur og hrærðu, í Mogga Davíðs.Og hafið þetta til marks: Þér munuð finna gubb vont, lagt í fötu. Og í sömu svipan var með löggumanninum fjöldi himneskra hljómsveita, sem lofuðu stuð og sögðu: Dýrð sé stuði í Hádegismóum, og fiður á Davíð og mönnum sem hann hefur velþóknun á. Þannig hljóðar hið heilaga stuðspjall. Og þegiðu svo!